Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Húsnæði

Húsnæði skólans
Skrifstofa skólans er í kennaraálmu, þar eru ritari og fjármálastjóri.  Í kennaraálmu eru einnig skrifstofur skólameistara og aðstoðarskólameistara, kennarastofa og vinnuherbergi kennara.  Nemendur eru beðnir að virða viðtalstíma kennara.  Notfærið ykkur pósthólf  þeirra sem eru á ganginum framan við skrifstofu skólans.  Þau er sérstaklega ætluð fyrir nemendur sem þurfa að koma skilaboðum til kennara eða skila verkefnum.
Skrifstofa áfangastjóra er framan við kennaraálmu og húsvörður er með aðstöðu í herbergi gegnt áfangastjóra. Bókasafn er á efri hæð skólans, fyrir ofan aðalinngang nemenda.  Matstofa nemenda er í kjallara í aðalkennsluálmu.

Kennslustofurnar
Stofur 1, 2, 3, 4 og 5 eru á efri hæð í aðalkennsluálmu, 1, 2 og 3 nær anddyri.
Stofur 6, 7, 8 og 9 (raungreinastofa) eru á jarðhæð í kennsluálmu, stofa 6 næst anddyri en stofa 9 fjærst.  Stofa 6 verður lítið notuð fyrir kennslu í vetur og er ásamt bókasafni hentug þeim sem vilja ljúka heimanámi í skólanum.
Stofur 11 (kvikmyndastofa) og 12  (myndmenntastofa) eru í kjallara kennaraálmu.
Stofa 10 er fyrir ofan nemendainngang, við hliðina á bókasafninu og verður eingöngu ætluð nemendum á starfsbraut í vetur.
Stofa ÍÞ er í íþróttahúsi
Stofa 1 er tölvustofa.  Stofan er opin nemendum þegar engin kennsla fer þar fram.  Þá hafa nemendur tækifæri á vinna þar verkefni sem tengjast skólanum. Forsenda þess að hægt sé að hafa stofuna opna er að allir nemendur gangi vel um og hlíti öllum þeim umgengnisreglum sem settar eru.  Við stofuna er auglýsing um opnunartíma og umgengnisreglur.


Staðsetning:

Forsíða > Húslestur > Eldri Húslestrar > Húslestur 6.1.2010 > Húsnæði

Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta
In EnglishPa DanskPa svenskaIn Deutsch

Nemendafélag FSH