Íþróttir V11
Íþróttatímar eru í Íþróttahöll, ýmist í aðalsal eða þreksal. Íþróttir eru nú allar í stokkum og er hægt að velja um tíma í A, B, C eða D stokk.
Nemendur, sem eru búnir með ÍÞR201 geta fengið að fara í sund og/eða stunda aðra útivist í samráði við íþróttakennara.
Íþróttatímar fyrir afreksfólk í íþróttum verða í B og D stokk. Í sumum tilfellum getur myndast árekstur milli íþrótta og annarra tíma. Ef svo er skulu þessir nemendur mæta í íþróttatímana. Íþróttakennari útskýrir nánar hvað felst í því að vera valinn í þennan hóp.
Athugið vel að aðrir nemendur geta líka verið í íÞróttum í B og D stokkum.
Þeir sem ekki hafa fengið íþróttir í töflu snúi sér til áfangastjóra.
Þeir sem eru með íþróttaárekstur hafi samband við íþróttakennara.
Íþróttatímar falla niður á fimmtudag og föstudag en íþróttakennsla hefst mánudaginn 10.jan. samkvæmt stundaskrá. Þeir nemendur sem ætla að velja sund eða útvist hafi sambandvið Ingólf Freysson íþróttakennara mánudaginn 10. janúar.







