Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Húslestur 2. tbl. 2011 21. árg.

2. tbl. 21. árgangur föstudaginn 4. febrúar 2011.  Ritstj. og ábm. Björgvin R. Leifsson

Efni:

1. Fyrsta fjarvistatalning annarinnar.  Viðmið er 98% mæting.  Þeir sem eru undir viðmiðinu fá sent bréf frá skólanum eða forráðamenn þeirra hafi þeir ekki náð 18 ára aldri.   
Mætingarreglur FSH

2. Val fyrir haustönn 2011 hefst í dag og lýkur 20. mars nk.  Hægt er að skila athugasemdum við valframboð til áfangastjóra fram til 25. febrúar.  Umsjónartími vegna valsins verður miðvikudaginn 9. mars en þá munu umsjónarkennarar leiðbeina þeim sem þurfa aðstoð.  Leiðbeiningar um val í Innu er að finna hér.
Ath. að þeir sem ekki skila vali í Innu verða ekki með í stundatöflugerð fyrir haustönn 2011.  Þannig gildir valið sem umsókn um skólavist.
Hægt er að gera námsáætlun í Innu 8 annir fram í tímann.
Umsjónarkennarar geta kallað á einstaka nemendur eða hóp nemenda í viðtalstíma vegna vals, þ.m.t. á fundartíma kl. 15:20 á miðvikudögum.
Upplýsingar um námsbrautir skólans
Kjörsviðsreglur stúdentsbrauta
Undanfarareglur áfanga.
Athugið vel að það að áfangi sé í boði þýðir ekki endilega að hann verði kenndur.  Eftir því sem fleiri velja áfanga aukast líkurnar á að hann verði kenndur.
Þeir, sem ætla að velja einhvern eða einhverja valáfanganna JAR163, LAN173, LÍF163, RIT173, SÁL163 eða THH102 (sjá áfanga í boði) verða að gera það í síðasta lagi 27. febrúar nk.
Endanlegt valframboð mun liggja fyrir mánudaginn 28. febrúar.

3. Brautaskipti:  Nemendur, sem vilja skipta um braut, t.d. af Almennri braut III yfir á stúdentsbraut, þurfa að hafa samband við áfangastjóra sem allra fyrst.


Staðsetning:

Forsíða > Húslestur > Eldri Húslestrar > Húslestur 4.2. 2011

Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta
In EnglishPa DanskPa svenskaIn Deutsch

Nemendafélag FSH