Umsjón V12
Umsjónarkennarar:
Námsráðgjafi er talsmaður nemenda og kallar nemendur í viðtal þegar þurfa þykir. Að öðru leyti eru umsjónarkennarar sem hér segir:
Auður Jónasdóttir Starfsbraut
Árný Þóra Ármannsdóttir Nemendur á almennum brautum fæddir 1994 og 1995
Björgvin R. Leifsson Eldri nemendur í fjarnámi, í ótilgreindu námi, á Sjúkraliðabraut og á umönnunarbrautum
Herdís Þuríður Sigurðardóttir Nýnemar fæddir 1995 á Félagsfræði- og Náttúrufræðibraut
Gunnar Árnason Nemendur fæddir 1994 á Félagsfræðibraut
Gunnar Baldursson Nemendur fæddir 1994 á Náttúrufræðibraut
Öðrum nemendum er ekki úthlutað umsjónarkennurum en er bent á að leita til kennara, námsráðgjafa eða stjórnenda með sín mál.
Umsjón
Engir fastir umsjónartímar verða á vorönn 2012. Umsjónarkennarar eru m.a. nemendum til aðstoðar við val og námsáætlun.
Drög að valframboði fyrir næstu önn munu liggja fyrir í síðasta lagi 6. febrúar og geta nemendur sent áfangastjóra tölvupóst á brl@fsh.is með ábendingum um hvaða áfanga þarf að kenna á næstu önn. Þetta þýðir að vinna við námsáætlun og val fyrir næstu önn hefst snemma á önninni og eru áætlaðar 3-4 vikur í þessa vinnu. Hægt er að búa til námsáætlun í skólakerfinu Innu 8 annir (4 ár) fram í tímann. Vali fyrir haustönn 2012 verður að ljúka í síðasta lagi 9. mars. Ætlast er til að nemendur búi til námsáætlun og velji í Innu undir leiðsögn umsjónarkennara. Umsjónartími vegna aðstoðar við val fyrir þá sem það vilja verður auglýstur síðar.
Athugið að skólanámsskrá er á heimasíðu skólans. Þar eru m.a. upplýsingar um alla áfanga og brautir skólans, námsmat, fjarvistakerfið o.fl.







