Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Töflubreytingar V12

Skoðið stundatöflurnar ykkar vel.  Ef þið hafið ekki fengið inn alla þá áfanga sem þið völduð geta ástæðurnar verið margvíslegar, t.d. að áfanginn er ekki kenndur, ekki er pláss í hóp, árekstar eru milli áfanga o.s.frv.  Enn er hægt að bæta inn áföngum og taka út áfanga.  Athugið að þessar töflubreytingar er eingöngu hægt að gera hjá áfangastjóra.

Viðtalstímar áfangastjóra vegna töflubreytinga:
  Miðvikudagur 4. janúar kl. 13:00 - 16:00
  Fimmtudagur 5. janúar kl.  13:00 - 16:00
  Föstudagur 6. janúar kl. 9:05 - 12:00

Komið vel undirbúin í töflubreytingar. Notið stofntöfluna hér fyrir neðan til að finna hvenær áfangar eru kenndir.

Kl   Mán  Þri  Mið  Fim  Fös  Nr. tíma 
8:00-9:00   A  G  D  H  B  1 
9:05-10:05   B  E  C
 D  A  2
10:20-11:20   C  A  E  B  F  3 
11:25-12:25   G  B  F  A  H  4
13:00-14:00   F  D  H  C  G  5
14:10-15:10   E  C  G  F
 6
15:20-16:20   D  H
 E
 7
16:30-17:30 




 8

 

A-stokkur: EFN303, ÍSL203, STÆ202-2, UPP203
B-stokkur: ENS403, LAN103, LÍF103, NÁT113
C-stokkur: DAN203-1, ÍSL403, LOH193, NÁT123
D-stokkur: JAR203, NÁT103, SAG203-1, ÞÝS203
E-stokkur: FRU293, SAG403, STÆ202-1, ÞÝS403
F-stokkur: ENS202, FÉL103, SAG203-2, SÁL203, STÆ203
G-stokkur: ENS203, FÉL203, ÍSL202, STÆ403, STÆ413
H-stokkur: DAN203-2, ÍSL303, SÁL403


Áfangar utan eða milli stokka: SÁL303

ÍÞR101-801 eru í A-D stokkum.

ATH.:
Eftirtaldir áfangar/hópar eru fullir eða að fyllast: DAN203-2, NÁT113

Nóg af lausum plássum í eftirtöldum áföngum: ENS202, SAG403, SÁL403, STÆ203

ATH.: DAN203-2 er yfirfullur.  Nemendur í hóp 2, sem hugsanlega geta skipt yfir í hóp 1 eða frestað dönskunni, hafi samband við áfangastjóra sem allra fyrst.

Öllum töflubreytingum verður að vera lokið þriðjudaginn 10. janúar.
Þeir sem skrá sig úr áfanga eftir 10. janúar fá einkunnina H í feril og teljast hafa reynt einu sinni við áfangann, þ.e. missa einn próftökurétt af þremur í áfanganum.

Ertu töflulaus?
Töflur endurinnritaðra nemenda eru hjá ritara.
Aðrir nemendur nálgast töflur sínar í Innu.
ATH að Innuaðgangur er lokaður þar til innritunargjaldið er greitt!
"Gleymdir" þú kannski að skila inn vali á síðustu önn? Ef svo er þarft þú nauðsynlega að tala við áfangastjóra á töflubreytingatíma.

Árekstrar
Árekstur kallast það þegar tveir áfangar eru skráðir í sama tímann. Ef tveir áfangar eru skráðir á sama tíma í stundatöflu gildir taflan sem árekstraheimild. Nemendur skulu hafa samband við báða viðkomandi kennara og ákveða kennararnir hvernig nemandinn mætir í þessa tíma.

 

Íþróttir


Staðsetning:

Forsíða > Húslestur > Eldri Húslestrar > Húslestur 4.1.2012 > Töflubreytingar V12

Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta
In EnglishPa DanskPa svenskaIn Deutsch

Nemendafélag FSH