Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Húsnæði V12

Húsnæði skólans
Skrifstofa skólans er í kennaraálmu og þar er ritari skólans.  Í kennaraálmu eru einnig skrifstofur skólameistara, námsráðgjafa og skólahjúkrunarfræðings, kennarastofa og vinnuherbergi kennara, þó er vinnuherbergi Gunnars Baldurssonar við hliðina á stofu 9.  Skrifstofa fjármálastjóra er inn af kennarastofu. Nemendur eru beðnir að virða viðtalstíma kennara.  Notfærið ykkur pósthólf  þeirra sem eru á ganginum framan við skrifstofu skólans.  Þau er sérstaklega ætluð fyrir nemendur sem þurfa að koma skilaboðum til kennara eða skila verkefnum.
Skrifstofa áfangastjóra er framan við kennaraálmu og umsjónarmenn húsnæðis eru með aðstöðu í herbergi gegnt áfangastjóra. Bókasafn er á efri hæð skólans, fyrir ofan aðalinngang nemenda.  Kerfisstjóri er með skrifstofu í kjallara kennaraálmu. Aðstaða nemenda, t.d. mat- og setustofa, er í kjallara í aðalkennsluálmu.

Kennslustofurnar
Stofur 1, 2, 3, 4 og 5 eru á efri hæð í aðalkennsluálmu, 1, 2 og 3 nær anddyri.
Stofur 6, 7, 8 og 9 (raungreinastofa) eru á jarðhæð í kennsluálmu, stofa 6 næst anddyri en stofa 9 fjærst.  Stofa 6 verður lítið notuð fyrir kennslu í vetur og er ásamt bókasafni hentug þeim sem vilja ljúka heimanámi í skólanum.
Stofur 11 (kvikmyndastofa) og 12  (myndmenntastofa) eru í kjallara kennaraálmu.
Stofa 10 er fyrir ofan nemendainngang, við hliðina á bókasafninu og verður eingöngu ætluð nemendum á starfsbraut í vetur.
Stofa ÍÞ er í íþróttahúsi
Stofa 1 er tölvustofa.  Stofan er opin nemendum þegar engin kennsla fer þar fram.  Þá hafa nemendur tækifæri á vinna þar verkefni sem tengjast skólanum. Forsenda þess að hægt sé að hafa stofuna opna er að allir nemendur gangi vel um og hlíti öllum þeim umgengnisreglum sem settar eru.  Við stofuna er auglýsing um opnunartíma og umgengnisreglur.
Stofumerking vinnustaðanáms sjúkraliða er SJ.

 

Skólasóknarreglur


Staðsetning:

Forsíða > Húslestur > Eldri Húslestrar > Húslestur 4.1.2012 > Húsnæði V12

Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta
In EnglishPa DanskPa svenskaIn Deutsch

Nemendafélag FSH