Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Húslestur 8. tbl. 2010 20. árg.

8. tbl. 20. árgangur mánudaginn 4. október 2010.  Ritstj. og ábm. Björgvin R. Leifsson

Efni:

1. Önnur fjarvistatalning annarinnar.  Viðmið er 96% mæting.  Þeir sem eru undir viðmiðinu fá sent bréf frá skólanum eða forráðamenn þeirra hafi þeir ekki náð 18 ára aldri.  Athugið að vinnslu fjarvista er ekki að fullu lokið. 
Nemendur og forráðamenn þeirra, sem eru yngri en 18 ára hafa fengið sendan tölvupóst um hvernig skoða má viðveru í Innu.
Mætingarreglur FSH

2. Val fyrir vorönn 2011 stendur yfir og lýkur 26. október nk.  Umsjónartími vegna valsins verður miðvikudaginn 20. október en þá munu umsjónarkennarar leiðbeina þeim sem þurfa aðstoð.  Leiðbeiningar um val í Innu er að finna hér.
Ath. að þeir sem ekki skila vali í Innu verða ekki með í stundatöflugerð fyrir vorönn 2011.  Þannig gildir valið sem umsókn um skólavist.
Hægt er að gera námsáætlun í Innu 8 annir fram í tímann.
Umsjónarkennarar geta kallað á einstaka nemendur eða hóp nemenda í viðtalstíma vegna vals, þ.m.t. á fundartíma kl. 15:20 á miðvikudögum.
Áfangar í boði vorönn 2011
Upplýsingar um námsbrautir skólans
Kjörsviðsreglur stúdentsbrauta
Undanfarareglur áfanga.
Athugið vel að það að áfangi sé í boði þýðir ekki endilega að hann verði kenndur.  Eftir því sem fleiri velja áfanga aukast líkurnar á að hann verði kenndur.
Þeir sem ætla að velja sérstaka valáfanga fyrir næstu önn verða að gera það í síðasta lagi sunnudaginn 10. október.  Mánudaginn 11. október verður framboð valáfanga minnkað niður í 2-3 eftir því hversu margir velja þá.

3. Drög að próftöflu haustannar 2010 eru nú komin á heimasíðu skólans. Frestur til að skila athugasemdum til áfangastjóra rennur út 12. nóvember.  Athugið sérstaklega hvort þið eruð í prófaárekstrum, þ.e. tvö próf á sama tíma í töflu.  Ekki er hægt að færa til próf þó að nemendur séu í tveimur prófum á sama degi.

4. Miðannarmat verður komið inn í Innu í síðasta lagi föstudaginn 15. október.

5. Brautaskipti:  Nemendur, sem vilja skipta um braut, t.d. af Almennri braut III yfir á stúdentsbraut, þurfa að hafa samband við áfangastjóra sem allra fyrst.


Staðsetning:

Forsíða > Húslestur > Eldri Húslestrar > Húslestur 4.10.2010

Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta
In EnglishPa DanskPa svenskaIn Deutsch

Nemendafélag FSH