Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Húslestur 9. tbl. 2011 21. árg.

9. tbl. 21. árgangur mánudaginn 31. október 2011.  Ritstj. og ábm. Björgvin R. Leifsson

Efni:

1. Þriðja fjarvistatalning annarinnar.  Viðmið er 94% mæting.  Þeir sem eru undir viðmiðinu fá sent bréf frá skólanum eða forráðamenn þeirra hafi þeir ekki náð 18 ára aldri. 
Hér má sjá hvernig skoða má viðveru í Innu.
Mætingarreglur FSH

2. Vali fyrir vorönn 2012 lauk 25. október sl.  Þeim, sem hugsanlega "gleymdu" að velja er bent á að hafa samband við áfangastjóra.

3. Drög að prófltöflu haustannar 2011 liggja nú fyrir.  Hægt er að skila athugasemdum til áfangastjóra til 18. nóvember nk.

4. Nemendum, sem þjást af prófkvíða eða telja sig þurfa á sérúrræðum að halda við fyrirlögn prófa, er bent á að hafa samband við námsráðgjafa sem allra fyrst og alls ekki síðar en 25. nóvember.

5. Prófkvíðanámskeið:

Námsráðgjafi heldur prófkvíðanámskeið fyrir nemendur í nóvember. Námskeiðið er 3 skipti, um klukkutími í senn og er mikilvægt að mæta í alla tímana.  Það er ætlað fyrir alla sem finna fyrir óþægilega miklum kvíða í prófum sem hefur áhrif á frammistöðu. Farið er yfir m.a. einkenni kvíða og prófkvíða, kvíðahugsanir, leiðir til að takast á við kvíða, slökun og góða námstækni.

Námskeiðið fer fram eftirfarandi daga kl. 16.00:

·         fimmtudag 10. nóv.

·         fimmtudag 17. nóv.

·         fimmtudag 24. nóv.

Ætlast er til þess að þeir nemendur sem óski eftir sérúrræði í prófum s.s. lengri próftíma vegna prófkvíða sæki námskeiðið.

Þeir nemendur sem eru í tímum til kl.16.20 á fimmtudögum látið námsráðgjafa vita um leið og skráning fer fram. Námsráðgjafi mun hafa samband við viðkomandi kennara og fá leyfi frá kl.16.

Skráning fer fram í gegnum tölvupóst og þarf að tilkynna þátttöku ekki síðar en mánudaginn 7. nóvember til námsráðgjafa.

6. Innritun fyrir vorönn 2012 hefst 1. nóvember og lýkur 30. nóvember.  Þeir, sem hafa valið í Innu fyrir næstu önn þurfa ekki að innrita sig sérstaklega.

7. Brautaskipti:  Nemendur, sem vilja skipta um braut, t.d. af Almennri braut III yfir á stúdentsbraut, þurfa að hafa samband við áfangastjóra sem allra fyrst.


Staðsetning:

Forsíða > Húslestur > Eldri Húslestrar > Húslestur 31.10.2011

Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta
In EnglishPa DanskPa svenskaIn Deutsch

Nemendafélag FSH