Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Húslestur 26. mars 2009

4. tbl. 19. árgangur.  Ritstjóri og ábyrgðarmaður:  Björgvin R. Leifsson

1. Fjarvistir, 3. talning

2. Drög að próftöflu vorannar 2009.  Frestur til að skila athugasemdum til áfangastjóra rennur út 24. apríl.  Endanleg próftafla kemur út 29. apríl.

3. Umsókn um einingar fyrir félagsstörf.  Hægt er að sækja um einingar fyrir félagsstörf skv. skólareglum.  Sótt er um í tölvupósti til áfangastjóra.  Umsóknarfrestur er til 30. apríl.

4. reytingar á stúdentsbrautum. Sjá brautalýsingar félagsfræðibrautar og náttúrufræðibrautar
a) Á félagsfræðibraut flyst SÁL103 í kjarna og UPP103 bætist við.  Nemendur hafa nú val um að taka 2 áfanga af SÁL103, UPP103, REK103 og ÞJÓ103 í kjarna.
Hagfræði- og bókfærslukjörsviðin falla út.
SAG503 fellur niður en i staðinn kemur SAG183 (nútímaíslandssaga) í kjörsviðslínuna.
Kjörsviðsáfangarnir FÉL403 (aðferðafræði), UPP203 og UPP303 bætast við.
b) Á náttúrufræðibraut falla eftirtaldir áfangar út af kjörsviðslínum: EFN483, JAR383, LÍF303

5. Breytingar á valframboði.  Vegna fyrirsjáanlegs niðurskurðar í fjármálum framhaldsskólans verður framboð á P-áföngum minnkað tímabundið.
a) Ekki verður hægt að fá p-heimild í kenndum áföngum þó að skilyrði um einkunn í undanfara séu uppfyllt.
b) Ekki verður boðið upp á yndislestursáfanga að svo stöddu.
c) Verkefnaáfangar eins og SAG503, JAR383 og LíF303 falla tímabundið út.

6. Brautaskipti.  Nemendur á 2. ári á almennri braut III, sem ætla á stúdentsbraut, þurfa að hafa samband við áfangstjóra sem allra fyrst.


Staðsetning:

Forsíða > Húslestur > Eldri Húslestrar > Húslestur 26.3.2009

Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta
In EnglishPa DanskPa svenskaIn Deutsch

Nemendafélag FSH