Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Umsjón H11

Umsjónarkennarar:

Námsráðgjafi er talsmaður nemenda og kallar nemendur í viðtal þegar þurfa þykir.  Að öðru leyti eru umsjónarkennarar sem hér segir:

Auður Jónasdóttir                  Starfsbraut
Árný Þóra Ármannsdóttir       Nemendur á almennum brautum fæddir 1994 og 1995
Björgvin R. Leifsson               Eldri nemendur í fjarnámi, í ótilgreindu námi, á Sjúkraliðabraut og á umönnunarbrautum
Herdís Þuríður Sigurðardóttir Nýnemar fæddir 1995 á Félagsfræði- og Náttúrufræðibraut
Gunnar Árnason                    Nemendur fæddir 1994 á Félagsfræðibraut
Gunnar Baldursson                Nemendur fæddir 1994 á Náttúrufræðibraut

Öðrum nemendum er ekki úthlutað umsjónarkennurum en er bent á að leita til kennara, námsráðgjafa eða stjórnenda með sín mál.

Umsjón
Einu föstu umsjónartimarnir eru í upphafi annar fyrir nemendur fædda 1994 og 1995 auk annarra nýnema og endurinnritaðra.  Að öðru leyti eru umsjónarkennarar nemendum til aðstoðar með val og námsáætlun.
Drög að valframboði fyrir næstu önn munu liggja fyrir í síðasta lagi 26. september og geta nemendur sent áfangastjóra tölvupóst á brl@fsh.is með ábendingum um hvaða áfanga þarf að kenna á næstu önn. Þetta þýðir að vinna við námsáætlun og val fyrir næstu önn hefst snemma á önninni og eru áætlaðar 3-4 vikur í þessa vinnu.  Hægt er að búa til námsáætlun í skólakerfinu Innu 8 annir (4 ár) fram í tímann.  Vali fyrir vorönn 2012 verður að ljúka í síðasta lagi í vikunni fyrir haustfrí.  Ætlast er til að nemendur búi til námsáætlun og velji í Innu undir leiðsögn umsjónarkennara.  Umsjónartími vegna aðstoðar við val fyrir þá sem það vilja verður auglýstur síðar.
Athugið að skólanámsskrá er á heimasíðu skólans.  Þar eru m.a. upplýsingar um alla áfanga og brautir skólans, námsmat, fjarvistakerfið o.fl.

Þeir, sem hyggja á útskrift við skólaslit vorið 2012, eru beðnir að hafa samband við áfangastjóra sem allra fyrst.

 

Inna og Innuaðgangur


Staðsetning:

Forsíða > Húslestur > Eldri Húslestrar > Húslestur 26.08.2011 > Umsjón H11

Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta
In EnglishPa DanskPa svenskaIn Deutsch

Nemendafélag FSH