Töflubreytingar H11
Skoðið stundatöflurnar ykkar vel. Ef þið hafið ekki fengið inn alla þá áfanga sem þið völduð geta ástæðurnar verið margvíslegar, t.d. að áfanginn er ekki kenndur, ekki er pláss í hóp, árekstar eru milli áfanga o.s.frv. Enn er hægt að bæta inn áföngum og taka út áfanga. Athugið að þessar töflubreytingar er eingöngu hægt að gera hjá áfangastjóra.
Viðtalstímar áfangastjóra vegna töflubreytinga:
Föstudagur 26. ágúst kl. 10:00 – 12:00 og 13:00 - 15:00
Mánudag 29. ágúst til fimmtudags 1. september á viðtalstímum eða eftir samkomulagi.
Komið vel undirbúin í töflubreytingar. Notið stofntöfluna hér fyrir neðan til að finna hvenær áfangar eru kenndir.
| Kl | Mán | Þri | Mið | Fim | Fös | Nr. tíma |
| 8:00-9:00 | A | G | D | H | B | 1 |
| 9:05-10:05 | B | E | C |
D | A | 2 |
| 10:20-11:20 | C | A | E | B | F | 3 |
| 11:25-12:25 | G | B | F | A | H | 4 |
| 13:00-14:00 | F | D | H | C | G | 5 |
| 14:10-15:10 | E | C | G | F | 6 | |
| 15:20-16:20 | D | H | E | 7 | ||
| 16:30-17:30 | 8 |
A-stokkur: DAN103, EFN203, ENS503, SÁL103
B-stokkur: ÍSL303, LKN103, STÆ122, STÆ313
C-stokkur: ÍSL212, STÆ193, STÆ303
D-stokkur: ÍSL102, NÁT123, SAG103, SÁL303, ÞÝS103
E-stokkur: ENS103, FRU193, ÍSL503, ÞÝS303
F-stokkur: EÐL303, ENS303, FÉL103, FÉL303, ÍSL103
G-stokkur: ENS102, ENS212, NÁT103, SAG303, STÆ503
H-stokkur: JAR103, SAG313, STÆ102, STÆ103, UPP103
Áfangar utan eða milli stokka: FÉV102, HOA103, THH102, UPP203
ÍÞR101-801 eru í A-D stokkum.
ATH.:
Eftirtaldir áfangar/hópar eru fullir eða að fyllast: DAN103, NÁT103, NÁT123, SAG103, SÁL103, STÆ313, THH102, UPP103, ÞÝS103
Nóg af lausum plássum í eftirtöldum áföngum: ENS212, FRU193, ÍSL102, STÆ103, STÆ193, STÆ503
Öllum töflubreytingum verður að vera lokið föstudaginn 2. september.
Þeir sem skrá sig úr áfanga eftir 2. september fá einkunnina H í feril og teljast hafa reynt einu sinni við áfangann, þ.e. missa einn próftökurétt af þremur í áfanganum.
Ertu töflulaus?
Ef þú ert töflulaus gæti skýringin verið sú að þú ert ekki búinn að greiða innritunargjaldið! Taflan þín er þá hjá ritara (fyrir nýnema og endurinnritaða) eða í Innu (hjá öðrum nemendum) og þú færð hana um leið og þú gerir upp skuldina. ATH að Innuaðgangur er lokaður þar til innritunargjaldið er greitt!
Annar möguleiki er að þú hafir “gleymt” að skila inn vali á síðustu önn. Ef svo er þarft þú nauðsynlega að tala við áfangastjóra á töflubreytingatíma.
Þriðji möguleikinn er að Inna sé að stríða okkur. Hafðu samband við áfangastjóra á töflubreytingatíma.
Árekstrar
Árekstur kallast það þegar tveir áfangar eru skráðir í sama tímann. Ef tveir áfangar eru skráðir á sama tíma í stundatöflu gildir taflan sem árekstraheimild. Nemendur skulu hafa samband við báða viðkomandi kennara og ákveða kennararnir hvernig nemandinn mætir í þessa tíma.







