Frjáls mćting og p-nám H11
Þeir nemendur sem óska eftir p-námi eða frjálsri mætingu verða að sækja um það skriflega og gera grein fyrir ástæðu umsóknar. Umsóknareyðublöðin fáið þið á skrifstofu skólans eða hjá áfangastjóra. Umsóknum skal skilað til áfangastjóra í síðasta lagi mánudaginn 29. ágúst. Ákvörðun um það hverjir fá p-heimildir eða frjálsa mætingu verður kunngerð miðvikudaginn 31. ágúst.
Hverjir geta sótt um frjálsa mætingu?
1. Þeir nemendur sem náð hafa 21 árs aldri og/eða búa við þær aðstæður að þeir telji sig ekki geta mætt í alla tíma, án þess þó að það komi niður á náminu.
2. Nemendur sem eru 18-20 ára og skrá sig í að hámarki 10 einingar á viðkomandi önn.
Hvað fylgir því að fá frjálsa mætingu?
Nemendur með frjálsa mætingu bera sjálfir ábyrgð á eigin námi og þurfa að kynna sér gaumgæfilega hvaða skyldur fylgja því.
Hverjir geta sótt um P-nám?
P-heimild getur komið til álita ef um útskriftarmál er að ræða.
Allir sem sækja um P-nám skulu koma í viðtal hjá áfangastjóra í síðasta lagi mánudaginn 29. ágúst.
Nemendum er bent á að kynna sér upplýsingar um P-nám og frjálsa mætingu í Skólanámsskrá







