Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Aðrar upplýsingar H11

Bókakaup
Boðið verður upp á bókakaupaferð til Akureyrar í dag kl. 13:00.  Þeir, sem ætla að þiggja þetta þurfa að skrá sig í ferðina í umsjónartímanum eða á blað hjá Ingólfi Freyssyni í síðasta lagi kl. 10:15.
Nemendur eru hvattir til að skipta eldri bókum sín á milli hér í skólanum.

Bókasafn FSH er fyrir ofan aðalinngang skólans við hliðina á stofu 10.   Þar er m.a. lesaðstaða og hægt að komast í tölvur.  Kynning á bókasafninu fyrir nýnema verður í næstu viku í íslenskutíma.  Opnunartímar bókasafns eru alla daga kl. 8-15 nema föstudaga kl. 8-13.

Skápar innan við anddyri.  Nemendur geta leigt sér skáp við anddyri hjá umsjónarmönnum húsnæðis.  Leigan er kr. 3.000,- á skólaári (tvær annir).  Þar af verða kr. 2.000,- endurgreiddar í lok skólaárs gegn afhendingu lykils.

Meðferð matvæla
 Öll neysla matar og drykkjar er bönnuð í kennslustofum skólans.

Kennslukerfið Moodle
 Slóðin er kennsluvefur.is, enn fremur er hlekkur á Moodle á fsh.is.
Notendanafn og lykilorð er það sama og á Innu.  Hafið samband við ritara ef þið komist ekki inn.  Kennarar tilkynna nemendum um gögn, sem þeir setja inn á Moodle.  Samskipti við fjarnámsnemendur fara að mestu fram gegnum Moodle.

Netaðgangur nemenda
 Nýnemar fá netföng hjá umsjónarkennara eða kerfisstjóra.
 Verði nemendur uppvísir að misnotkun á tölvukerfi skólans verður aðgangurinn tekinn af þeim.
 Opnunartímar stofu 1 eru þegar hún er ekki í notkun skv. töflu (sjá auglýsingu við stofudyrnar).  Kennarar með hópa hafa þó forgang á opnunartímum fram yfir aðra.
 Eldri nemendur halda sínum netföngum.  Komist einhver ekki inn skal hafa samband við kerfisstjóra.
Ath. að til að nota Innuaðgang verða nemendur að hafa netaðgang!

Nýnemar þurfa að breyta lykilorði sínu þegar þeir tengjast í fyrsta skipti. Vertu viss um að velja öruggt lykilorð sem þú gleymir ekki. Óöruggt lykilorð er til dæmis: Hluti úr nafni þínu, fæðingardag, kennitölu, fæðingardegi nærstaddra og annað sem augljóslega er hægt að tengja við þig
Ef þú gleymir lykilorði þínu hafðu samband við kerfisstjóra.

Netfang þitt verður: notendanafn@fsh.is, dæmi: jonj@fsh.is.  Þetta er netfangið sem notað er í Innu og því má ekki breyta!

Heimasvæði þitt er undir “H:” drifi og kvóti verður 50Mb. Vistið gögn ykkar í möppuna “My Documents” eða beint inn á H: drif.

Athugið!
Þegar þú yfirgefur tölvu skalt þú ávallt aftengjast með því að ýta á “Start” hnapp og velja “Log off notandi”.
Tölvustofan er oft mjög umsetin og ekki er leyfilegt að “skreppa” í burtu frá tölvu nema í mjög stuttan tíma. Ef þú kemur að tölvu þar sem enginn situr en einhver er augljóslega tengdur skalt þú gefa viðkomandi nægan tíma til að koma til baka frá salerni (c.a. 2-3 mínútur), vista síðan það sem unnið er með, aftengja viðkomandi og nota tölvuna!

 

Útskriftarnemar vor 2012
Þeir nemendur, sem hyggja á útskrift vorið 2012,  eru beðnir um að koma í viðtal hjá áfangastjóra sem allra fyrst.


 

Björgvin R. Leifsson, áfangastjóri, brl@fsh.is


Staðsetning:

Forsíða > Húslestur > Eldri Húslestrar > Húslestur 26.08.2011 > Aðrar upplýsingar fyrir haustönn 2011

Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta
In EnglishPa DanskPa svenskaIn Deutsch

Nemendafélag FSH