Húslestur 4. tbl. 2011 21. árg.
4. tbl. 21. árgangur miðvikudaginn 23. mars 2011. Ritstj. og ábm. Björgvin R. Leifsson
Efni:
1. Þriðja fjarvistatalning annarinnar. Viðmið er 94% mæting. Þeir sem eru undir viðmiðinu fá sent bréf frá skólanum eða forráðamenn þeirra hafi þeir ekki náð 18 ára aldri.
Mætingarreglur FSH
2. Vali fyrir haustönn 2011 er lokið. Þeir, sem "gleymdu" að velja hafi samband við áfangastjóra.
3. Drög að próftöflu vorannar 2011. Athugasemdir berist áfangastjóra í síðasta lagi 31. mars.
4. ERTU AÐ GLÍMA VIÐ LESBLINDU EÐA PRÓFKVÍÐA?
Hægt er að koma til móts við ýmsar séróskir og þarfir nemenda við fyrirlögn
prófa, sbr. sértæk námsúrræði FSH. Til þess að unnt
sé að koma þessu í kring er brýnt að nemendur hafi samband við námsráðgjafa eða
áfangastjóra með góðum fyrirvara fyrir próf, eða í síðasta lagi 15. apríl.
5. Umsókn um einingar fyrir félagsstörf. Hægt er að sækja um einingar fyrir félagsstörf skv. reglum um námsmat. Sótt er um í tölvupósti til áfangastjóra. Umsóknarfrestur er til 29. apríl.
6. Brautaskipti: Nemendur, sem vilja skipta um braut, t.d. af almennri braut III yfir á stúdentsbraut, þurfa að hafa samband við áfangastjóra sem allra fyrst.







