Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Húslestur 7. tbl. 2011 21. árg.

7. tbl. 21. árgangur föstudaginn 23. september 2011.  Ritstj. og ábm. Björgvin R. Leifsson

Efni:

1. Fyrsta fjarvistatalning annarinnar.  Viðmið er 98% mæting.  Þeir sem eru undir viðmiðinu fá sent bréf frá skólanum eða forráðamenn þeirra hafi þeir ekki náð 18 ára aldri.  Ánægjulegt er hve fáir eru undir viðmiði núna og eiga nemendur hrós skilið.
Hér má sjá hvernig skoða má viðveru í Innu.
Mætingarreglur FSH

2. Val fyrir vorönn 2012 hefst í dag og lýkur 25. október nk.  Hægt er að skila athugasemdum við valframboð til áfangastjóra fram til 7. október.  Umsjónartími vegna valsins verður miðvikudaginn 19. október en þá munu umsjónarkennarar leiðbeina þeim sem þurfa aðstoð.  Ætlast er til að nýnemar fæddir 1995 komi í þennan umsjónartíma nema þeir séu búnir að velja áður með aðstoð umsjónarkennara..  Leiðbeiningar um val í Innu er að finna hér.
Ath. að þeir sem ekki skila vali í Innu verða ekki með í stundatöflugerð fyrir vorönn 2012.  Þannig gildir valið sem umsókn um skólavist.
Hægt er að gera námsáætlun í Innu 8 annir fram í tímann.
Umsjónarkennarar geta kallað á einstaka nemendur eða hóp nemenda í viðtalstíma vegna vals, þ.m.t. á fundartíma kl. 15:20 á miðvikudögum.
Upplýsingar um námsbrautir skólans
Kjörsviðsreglur stúdentsbrauta
Undanfarareglur áfanga.
Athugið vel að það að áfangi sé í boði þýðir ekki endilega að hann verði kenndur.  Eftir því sem fleiri velja áfanga aukast líkurnar á að hann verði kenndur.
Endanlegt valframboð mun liggja fyrir mánudaginn 10. október.  Þá verður framboð valáfanga skorið niður eftir því hve margir hafa valið þá.  Því borgar sig að velja sem allra fyrst.
Drög að valframboði er að finna hér.

3. Brautaskipti:  Nemendur, sem vilja skipta um braut, t.d. af Almennri braut III yfir á stúdentsbraut, þurfa að hafa samband við áfangastjóra sem allra fyrst.


Staðsetning:

Forsíða > Húslestur > Eldri Húslestrar > Húslestur 23.09.2011

Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta
In EnglishPa DanskPa svenskaIn Deutsch

Nemendafélag FSH