Húslestur 2. febrúar 2010
2. tbl. 20. árgangur þriðjudaginn 2. febrúar 2010. Ritstj. og ábm. Björgvin R. Leifsson
Efni:
1. Fyrsta fjarvistatalning annarinnar. Viðmið er 98% mæting. Þeir sem eru undir viðmiðinu fá sent bréf frá skólanum eða forráðamenn þeirra hafi þeir ekki náð 18 ára aldri. Óvenjumargir eru undir viðmiði núna og er það áhyggjuefni þar sem það getur leitt til úrsagna og lægri einkunna.
Sú nýbreytni hefur verið tekin upp að senda fjarvistayfirlit beint úr Innu til allra nemenda (og forráðamanna yngri en 18 ára) burtséð frá því hvort þeir eru með frjálsa mætingu eða ekki.
Mætingarreglur FSH
2. Val fyrir haustönn 2010 hefst í dag og lýkur 7. mars nk. Hægt er að skila athugasemdum við valframboð til áfangastjóra fram til 9. febrúar. Umsjónartími vegna valsins verður miðvikudaginn 17. febrúar en þá munu umsjónarkennarar leiðbeina þeim sem þurfa aðstoð. Leiðbeiningar um val í Innu er að finna hér.
Ath. að þeir sem ekki skila vali í Innu verða ekki með í stundatöflugerð fyrir haustönn 2010. Þannig gildir valið sem umsókn um skólavist.
Hægt er að gera námsáætlun í Innu 8 annir fram í tímann.
Umsjónarkennarar geta kallað á einstaka nemendur eða hóp nemenda í viðtalstíma vegna vals, þ.m.t. á fundartíma kl. 15:20 á miðvikudögum. Nemendur, sem hyggja á námslok á næsta skólaári ættu að hafa samband við áfangastjóra.
Upplýsingar um námsbrautir skólans
Kjörsviðsreglur stúdentsbrauta
Undanfarareglur áfanga.
Athugið vel að það að áfangi sé í boði þýðir ekki endilega að hann verði kenndur. Eftir því sem færri velja áfanga minnka líkurnar á að hann verði kenndur.
3. Brautaskipti: Nemendur, sem vilja skipta um braut, t.d. af Almennri braut III yfir á stúdentsbraut, þurfa að hafa samband við áfangastjóra sem allra fyrst.







