Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Húslestur 10. tbl. 2011 21. árg.

10. tbl. 21. árgangur mánudaginn 21. nóvember 2011.  Ritstj. og ábm. Björgvin R. Leifsson

Efni:

1. Fjórða fjarvistatalning annarinnar.  Viðmið er 92% mæting.  Þeir sem eru undir viðmiðinu fá sent bréf frá skólanum eða forráðamenn þeirra hafi þeir ekki náð 18 ára aldri.  Mjög fáir hafa verið á gátlista á þessari önn og eiga nemendur hrós skilið fyrir það.
Hér má sjá hvernig skoða má viðveru í Innu.
Mætingarreglur FSH

2. Vali fyrir vorönn 2012 lauk 25. október sl.  Þeim, sem hugsanlega "gleymdu" að velja er bent á að hafa samband við áfangastjóra.

3. Próftafla haustannar 2011 liggur nú fyrir.  Þar eru einnig prófreglur FSH.

4. Nemendum, sem þjást af prófkvíða eða telja sig þurfa á sérúrræðum að halda við fyrirlögn prófa, er bent á að hafa samband við námsráðgjafa sem allra fyrst og alls ekki síðar en 25. nóvember.

5. Innritun fyrir vorönn 2012 hefst 1. nóvember og lýkur 30. nóvember.  Þeir, sem hafa valið í Innu fyrir næstu önn þurfa ekki að innrita sig sérstaklega.

6. Brautaskipti:  Nemendur, sem vilja skipta um braut, t.d. af Almennri braut III yfir á stúdentsbraut, þurfa að hafa samband við áfangastjóra sem allra fyrst.

7. Kennsla á vorönn 2012 hefst með örtímum miðvikudaginn 4. janúar kl. 10:00. þar sem náms- og kennsluáætlanir verða kynntar. Töflubreytingar verða eftir hádegi.


Staðsetning:

Forsíða > Húslestur > Eldri Húslestrar > Húslestur 21.11.2011

Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta
In EnglishPa DanskPa svenskaIn Deutsch

Nemendafélag FSH