Ýmsar upplýsingar
Bókamarkaður
Nýjar bækur fást í Bókaverslun Þórarins Stefánssonar en skiptibókamarkaður verður í skólanum í dag, 20. ágúst, milli kl. 15 og 17. Tekið verður við gömlum bókum milli kl. 13 og 15 sama dag. Eingöngu er tekið við bókum, sem eru á bókalista haustannar 2010. Enn fremur verður skiptibókamarkaðurinn að einhverju leyti starfræktur í næstu viku og verður nánar auglýstur þá.
Bókasafn FSH er fyrir ofan aðalinngang skólans við hliðina á stofu 10. Þar er m.a. lesaðstaða og hægt að komast í tölvur. Kynning á bókasafninu fyrir nýnema verður í næstu viku í íslenskutíma.
Skápar innan við anddyri. Nú eru komnir skápar í rýminu innan við anddyri skólans. Nemendur geta leigt sér skáp hjá húsverði. Leigan er kr. 3.000,- á skólaári (tvær annir). Þar af verða kr. 2.000,- endurgreiddar í lok skólaárs gegn afhendingu lykils.
Meðferð matvæla
Öll neysla matar og drykkjar er bönnuð í kennslustofum skólans.
Útskriftarnemar!
Þeir sem hyggja á námslok í vetur hafi samband við áfangastjóra sem allra fyrst.
Kennslukerfið Moodle
Slóðin er kennsluvefur.is, enn fremur er hlekkur á Moodle á fsh.is.
Notendanafn og lykilorð er það sama og á Innu. Hafið samband við ritara ef þið komist ekki inn. Kennarar tilkynna nemendum um gögn, sem þeir setja inn á Moodle.
Netaðgangur nemenda
Nýnemar fá netföng hjá umsjónarkennara.
Verði nemendur uppvísir að misnotkun á tölvukerfi skólans verður aðgangurinn tekinn af þeim.
Opnunartímar stofu 1 eru þegar hún er ekki í notkun skv. töflu (sjá auglýsingu við stofudyrnar). Kennarar með hópa hafa þó forgang á opnunartímum fram yfir aðra.
Eldri nemendur halda sínum netföngum. Komist einhver ekki inn skal hafa samband við kerfisstjóra.
Ath. að til að nota Innuaðgang verða nemendur að hafa netaðgang!
Nýnemar þurfa að breyta lykilorði sínu þegar þeir tengjast í fyrsta skipti. Vertu viss um að velja öruggt lykilorð sem þú gleymir ekki. Óöruggt lykilorð er til dæmis: Hluti úr nafni þínu, fæðingardag, kennitölu, fæðingardegi nærstaddra og annað sem augljóslega er hægt að tengja við þig
Ef þú gleymir lykilorði þínu hafðu samband við kerfisstjóra.
Netfang þitt verður: notendanafn@fsh.is, dæmi: jonj@fsh.is. Þetta er netfangið sem notað er í Innu og því má ekki breyta!
Heimasvæði þitt er undir “H:” drifi og kvóti verður 50Mb. Vistið gögn ykkar í möppuna “My Documents” eða beint inn á H: drif.
Athugið!
Þegar þú yfirgefur tölvu skalt þú ávallt aftengjast með því að ýta á “Start” hnapp og velja “Log off notandi”.
Tölvustofan er oft mjög umsetin og ekki er leyfilegt að “skreppa” í burtu frá tölvu nema í mjög stuttan tíma. Ef þú kemur að tölvu þar sem enginn situr en einhver er augljóslega tengdur skalt þú gefa viðkomandi nægan tíma til að koma til baka frá salerni (c.a. 2-3 mínútur), vista síðan það sem unnið er með, aftengja viðkomandi og nota tölvuna!
Framhaldsskólinn á Húsavík er með Facebook hóp, EKKI síðu, þar sem ýmsar auglýsingar og tenglar á heimasíðu skólans verða birt. Leitið að "Framhaldsskólinn á Húsavík" og skráið ykkur. ATHUGIÐ að hér er um að ræða HÓP en ekki síðu. Á Facebook eru tvær síður, sem þykjast vera á okkar vegum en eru það ekki!
Tónlistarskóli Húsavíkur hefur beðið okkur um að koma því á framfæri að kórstarf og marimbaæfingar verða í vetur ef næg þátttaka fæst. Möguleiki er að fá þetta metið til eininga við FSH, ein eining hvort. Skráningar verða í næstu viku hjá áfangastjóra.
Að lokum
Vonandi verður samstarfið ánægjulegt í vetur – gangi ykkur vel !
Björgvin R. Leifsson, áfangastjóri, brl@fsh.is







