Umsjón H10
Umsjónarkennarar:
| Stofa | |
| Auður Jónasdóttir | 10 |
| Björgvin R. Leifsson | 9 |
| Dóra Ármannsdóttir | 5 |
| Gunnar Árnason | 2 |
| Herdís Þuríður Sigurðardóttir | 7 |
| Ingibjörg Bragadóttir | 3 |
| Ingólfur Freysson | 6 |
| Smári Sigurðsson | 4 |
| Valdimar Stefánsson | 8 |
Umsjón
Einu föstu umsjónartímarnir eru í upphafi annar og valdagur 20. október.
Að auki er umsjónartími fyrir nýnema í dag kl. 13:00, þar sem farið verður yfir helstu atriði í Innu.
Að öðru leyti eru umsjónarkennarar nemendum til aðstoðar með val og námsáætlun.
Drög að valframboði fyrir næstu önn munu liggja fyrir upp úr miðjum september og geta nemendur sent áfangastjóra tölvupóst á brl@fsh.is með ábendingum um hvaða áfanga þarf að kenna á næstu önn. Þetta þýðir að vinna við námsáætlun og val fyrir næstu önn hefst snemma á önninni og eru áætlaðar nokkrar vikur í þessa vinnu. Hægt er að búa til námsáætlun í skólakerfinu Innu 8 annir (4 ár) fram í tímann. Vali fyrir vorönn 2011 verður að ljúka í síðasta lagi 22. október eða daginn fyrir haustfrí. Verði dráttur á því velur áfangastjóri eða umsjónarkennari fyrir nemandann og leggjast þá kr. 1.000,- ofan á skólagjald næstu annar. Ætlast er til að nemendur búi til námsáætlun og velji í Innu undir leiðsögn umsjónarkennara.
Athugið að skólanámsskrá er á heimasíðu skólans. Þar eru m.a. upplýsingar um alla áfanga og brautir skólans, námsmat, fjarvistakerfið o.fl.







