Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Töflubreytingar H10

Skoðið stundatöflurnar ykkar vel.  Ef þið hafið ekki fengið inn alla þá áfanga sem þið völduð geta ástæðurnar verið margvíslegar, t.d. að áfanginn er ekki kenndur, ekki er pláss í hóp, árekstar eru milli áfanga o.s.frv.  Enn er hægt að bæta inn áföngum og taka út áfanga.  Athugið að þessar töflubreytingar er eingöngu hægt að gera hjá áfangastjóra.

Viðtalstímar áfangastjóra vegna töflubreytinga:
  Föstudagur 20. ágúst  kl. 13:00 – 15:00
  Mánudagur 23. agúst  kl. 8:00 – 11:00 og 13:00 – 16:00
  Þriðjudag 24. ágúst til föstudags 27. ágúst á viðtalstímum eða eftir samkomulagi.

Komið vel undirbúin í töflubreytingar. Notið stofntöfluna hér fyrir neðan til að finna hvenær áfangar eru kenndir.

Kl   Mán  Þri  Mið  Fim  Fös  Nr. tíma 
8:00-9:00   A  H  D  G  B  1 
9:05-10:05   B  E  C
 D  A  2
10:20-11:20   C  A  E  B  F  3 
11:25-12:25   G  B  F  A  H  4
13:00-14:00   F  D  H  C  G  5
14:10-15:10   E  F  G  H    6
15:20-16:20   D  C    E    7
16:30-17:30             8
17:30-18:30           9

 

10:00-10:15 A-stokkur EÐL303 ENS303 STÆ102 STÆ192    
10:15-10:30 B-stokkur ÍSL102 ÍSL103 ÍSL503 STÆ122    
10:30-10:45 C-stokkur ENS503 JAR173 JAR213 NÁT103 SAG103  
10:45-11:00 D-stokkur ENS103 SAG183 STÆ503      
11:00-11:15 E-stokkur ENS102 FÉL303 ÍSL212 LÍF113 SAG303 ÞÝS103
11:15-11:30 F-stokkur EFN303 ENS212 FRU193 ÍSL303 SÁL303 STÆ103
11:30-11:45 G-stokkur DAN103-1 FÉL103 STÆ303 STÆ313 UPP103 ÞÝS303-1
11:45-12:00 H-stokkur DAN103-2 LOH193 NÁT123 SÁL103 ÞÝS303-2  

Íþróttir eru í 4 hópum í stokkum A, B, C og D.


Áfangar utan eða milli stokka: FÖT103, HJV113, SAM103,112, SAS103.  HJV113 er reyndar ekki kominn í töflu ennþá.

ATH.:
Eftirtaldir áfangar/hópar eru fullir eða að fyllast: ENS303, FÉL103, ÍSL503, NÁT103, NÁT123, SAG103

Nóg af lausum plássum í eftirtöldum áföngum: EÐL303, ENS212, ÍSL212, JAR173, SAG303, UPP103

Öllum töflubreytingum verður að vera lokið föstudaginn 27. ágúst.
Þeir sem skrá sig úr áfanga eftir 27. ágúst fá einkunnina H í feril og teljast hafa reynt einu sinni við áfangann, þ.e. missa einn próftökurétt af þremur í áfanganum.

Ertu töflulaus?
 Ef þú ert töflulaus gæti skýringin verið sú að þú ert ekki búinn að greiða innritunargjaldið!  Taflan þín er þá hjá ritara (fyrir nýnema og endurinnritaða) eða í Innu (hjá öðrum nemendum) og þú færð hana um leið og þú gerir upp skuldina.  ATH að Innuaðgangur er lokaður þar til innritunargjaldið er greitt!
 Annar möguleiki er að þú hafir “gleymt” að skila inn vali á síðustu önn. Ef svo er þarft þú nauðsynlega að tala við áfangastjóra á töflubreytingatíma.
 Þriðji möguleikinn er að Inna sé að stríða okkur.  Hafðu samband við áfangastjóra á töflubreytingatíma.

Árekstrar
Árekstur kallast það þegar tveir áfangar eru skráðir í sama tímann. Ef tveir áfangar eru skráðir á sama tíma í stundatöflu gildir taflan sem árekstraheimild. Nemendur skulu hafa samband við báða viðkomandi kennara og ákveða kennararnir hvernig nemandinn mætir í þessa tíma.

 

Athugið vel að full tafla telst vera 6 áfangar ásamt íþróttum.

 

Íþróttir


Staðsetning:

Forsíða > Húslestur > Eldri Húslestrar > Húslestur 20.08.2010 > Töflubreytingar H10

Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta
In EnglishPa DanskPa svenskaIn Deutsch

Nemendafélag FSH