Innuupplýsingar H10
Aðgangur nemenda að skólakerfinu, Innu,
er tilbúinn. Slóðin er http://nemendur.inna.is. Notandanafn er búið til úr skólanúmeri nemenda, sem kemur fram á stundatöflunni og er FSHskólanúmer. Nýnemar og endurinnritaðir fá leyniorð hjá umsjónarkennara eða ritara. Munið að breyta leyniorðinu þegar þið farið inn í fyrsta skipti. Þegar farið er inn í Innu kemur upp stundataflan. Upplýsingar um námsferil, einkunnir, fjarvistir o.fl. fáið þið með því að smella á viðkomandi hlekki vinstra megin við stundatöfluna. Hægt er að prenta út stundatöflu, námsferil o.fl. úr Innu. Sjá nánar um Innu á fsh.is
Athugið að til að komast inn á Innu þurfið þið aðgang að tölvukerfi skólans. Hann fáið þið einnig hjá umsjónarkennara eða ritara.
Eldri nemendur halda sínum lykilorðum.
Hægt er að panta ný lykilorð í Innu.
Hér má finna upplýsingar um Innu







