Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Húslestur 18. mars 2010

4. tbl. 20. árgangur fimmtudaginn 18. mars 2010.  Ritstj. og ábm. Björgvin R. Leifsson

Efni:

1. Þriðja fjarvistatalning annarinnar.  Viðmið er 94% mæting.  Þeir sem eru undir viðmiðinu fá sent bréf frá skólanum eða forráðamenn þeirra hafi þeir ekki náð 18 ára aldri.  Óvenjumargir eru undir viðmiði núna og er það áhyggjuefni þar sem það getur leitt til úrsagna og lægri einkunna. 
Sú nýbreytni hefur verið tekin upp að senda fjarvistayfirlit beint úr Innu til allra nemenda (og forráðamanna yngri en 18 ára) burtséð frá því hvort þeir eru með frjálsa mætingu eða ekki.
Enn fremur sýnir Inna nú bæði mætingu miðað við alla tíma annarinnar að frádregnum vottorðum, veikindum o.þ.h. og raunmætingu, þ.e. raunverulega mætingu nemandans þar sem ekkert tillit er tekið til frádráttarliða.  Þessi tala er miðuð við kennda tíma, þ.e. þá tíma, sem liðnir eru af önninni.  Athugið að viðmiðið, 94%, er hlutfall mætingar af önninni að teknu tilliti til frádráttarliða.
Mætingarreglur FSH

2. Drög að próftöflu vorannar 2010.  Frestur til að skila athugasemdum til áfangastjóra er til 9. apríl.
Prófreglur FSH 

3. ERTU AÐ GLÍMA VIÐ LESBLINDU EÐA PRÓFKVÍÐA?
Hægt er að koma til móts við ýmsar séróskir og þarfir nemenda við fyrirlögn
prófa, sbr. sértæk námsúrræði FSH. Til þess að unnt
sé að koma þessu í kring er brýnt að nemendur hafi samband við
áfangastjóra með góðum fyrirvara fyrir próf, eða í síðasta lagi 21. apríl.

4. Umsókn um einingar fyrir félagsstörf.  Hægt er að sækja um einingar fyrir félagsstörf skv. reglum um námsmat.  Sótt er um í tölvupósti til áfangastjóra.  Umsóknarfrestur er til 30. apríl.


Staðsetning:

Forsíða > Húslestur > Eldri Húslestrar > Húslestur 18.3.2010

Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta
In EnglishPa DanskPa svenskaIn Deutsch

Nemendafélag FSH