Húslestur 17. nóvember 2009
2. Próftafla haustannar 2009. Frestur til að skila inn athugasemdum til áfangastjóra er til 20. nóvember. Eftir það er próftaflan endanleg.
3. Um Innu: Leiðbeiningar um val o.fl.
4. Frá námsráðgjafa
ERTU AÐ GLÍMA VIÐ LESBLINDU EÐA PRÓFKVÍÐA?
Hægt er að koma til móts við ýmsar séróskir og þarfir nemenda við fyrirlögn
prófa. Þeir nemendur er t.a.m. hafa greinst með sértæka námsörðugleika, svo sem
lesblindu, geta óskað eftir prófi þar sem prófformið byggir á
hlustun. Nemendur sem glíma við kvíða og/eða fælni geta að uppfylltum
vissum skilyrðum fengið að þreyta próf í fámennum stofum. Til þess að unnt
sé að koma þessu í kring er brýnt að nemendur hafi samband við
námsráðgjafa með góðum fyrirvara fyrir próf, eða í síðasta lagi 28. nóvember.
5. Upphaf vorannar 2010
Þetta er síðasti Húslestur á þessu ári. Næsti kemur út 6. janúar 2010 en þann dag hefst vorönn 2010 með umsjón kl. 9:00







