Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Húslestur 5. tbl. 2010 20. árg.

5. tbl. 20. árgangur þriðjudaginn 13. apríl 2010.  Ritstj. og ábm. Björgvin R. Leifsson

Efni:

1. Fjórða fjarvistatalning annarinnar.  Viðmið er 92% mæting.  Þeir sem eru undir viðmiðinu fá sent bréf frá skólanum eða forráðamenn þeirra hafi þeir ekki náð 18 ára aldri.  Mun færri eru undir viðmiði núna en síðast og ber að hrósa fyrir það. 
Sú nýbreytni hefur verið tekin upp að senda fjarvistayfirlit beint úr Innu til allra nemenda (og forráðamanna yngri en 18 ára) burtséð frá því hvort þeir eru með frjálsa mætingu eða ekki.
Enn fremur sýnir Inna nú bæði mætingu miðað við alla tíma annarinnar að frádregnum vottorðum, veikindum o.þ.h. og raunmætingu, þ.e. raunverulega mætingu nemandans þar sem ekkert tillit er tekið til frádráttarliða.  Þessi tala er miðuð við kennda tíma, þ.e. þá tíma, sem liðnir eru af önninni.  Athugið að viðmiðið, 92%, er hlutfall mætingar af önninni að teknu tilliti til frádráttarliða.
Þau mistök urðu að fyrstu 2 yfirlitin, sem voru send úr Innu 13.4. sl. áttu ekki að fara út.  Síðustu 2 yfirlitin sýndu mætingu miðað við önn annars vegar að frádregnum veikindum o.þ.h. og raunmætingu hins vegar.  Beðist er velvirðingar á þessu.
Mætingarreglur FSH

2. Próftafla vorannar 2010 og Prófreglur FSH 

3. ERTU AÐ GLÍMA VIÐ LESBLINDU EÐA PRÓFKVÍÐA?
Hægt er að koma til móts við ýmsar séróskir og þarfir nemenda við fyrirlögn prófa, sbr. sértæk námsúrræði FSH. Til þess að unnt sé að koma þessu í kring er brýnt að nemendur hafi samband við áfangastjóra með góðum fyrirvara fyrir próf, eða í síðasta lagi 21. apríl.

4. Umsókn um einingar fyrir félagsstörf.  Hægt er að sækja um einingar fyrir félagsstörf skv. reglum um námsmat.  Sótt er um í tölvupósti til áfangastjóra.  Umsóknarfrestur er til 30. apríl.

5. Skólaslit og brautskráning verður föstudaginn 21. maí kl. 14:00


Staðsetning:

Forsíða > Húslestur > Eldri Húslestrar > Húslestur 13.4.2010

Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í stórri stærð Hamur fyrir sjónskerta
In EnglishPa DanskPa svenskaIn Deutsch

Nemendafélag FSH