Húslestur 8. tbl. 2011 21. árg.
8. tbl. 21. árgangur þriðjudaginn 11. október 2011. Ritstj. og ábm. Björgvin R. Leifsson
Efni:
1. Önnur fjarvistatalning annarinnar. Viðmið er 96% mæting. Þeir sem eru undir viðmiðinu fá sent bréf frá skólanum eða forráðamenn þeirra hafi þeir ekki náð 18 ára aldri.
Hér má sjá hvernig skoða má viðveru í Innu.
Mætingarreglur FSH
2. Vali fyrir vorönn 2012 lýkur 25. október nk. Hægt er að skila athugasemdum við valframboð til áfangastjóra fram til 7. október. Umsjónarkennarar aðstoða ólögráða nemendur með valið en eldri nemendur geta leitað til áfangastjóra eða námsráðgjafa. Leiðbeiningar um val í Innu er að finna hér.
Ath. að þeir sem ekki skila vali í Innu verða ekki með í stundatöflugerð fyrir vorönn 2012. Þannig gildir valið sem umsókn um skólavist.
Hægt er að gera námsáætlun í Innu 8 annir fram í tímann.
Umsjónarkennarar geta kallað á einstaka nemendur eða hóp nemenda í viðtalstíma vegna vals, þ.m.t. á fundartíma kl. 15:20 á miðvikudögum.
Upplýsingar um námsbrautir skólans
Kjörsviðsreglur stúdentsbrauta
Undanfarareglur áfanga.
Athugið vel að það að áfangi sé í boði þýðir ekki endilega að hann verði kenndur. Eftir því sem fleiri velja áfanga aukast líkurnar á að hann verði kenndur.
Endanlegt valframboð liggur nú fyrir. Framboð valáfanga hefur verið skorið niður eftir því hve margir völdu þá.
3. Drög að prófltöflu haustannar 2011 liggja nú fyrir. Hægt er að skila athugasemdum til áfangastjóra til 18. nóvember nk.
4. Nemendum, sem þjást af prófkvíða eða telja sig þurfa á sérúrræðum að halda við fyrirlögn prófa, er bent á að hafa samband við námsráðgjafa sem allra fyrst og alls ekki síðar en 25. nóvember.
5. Brautaskipti: Nemendur, sem vilja skipta um braut, t.d. af Almennri braut III yfir á stúdentsbraut, þurfa að hafa samband við áfangastjóra sem allra fyrst.







