Beint á leiđarkerfi vefsins
Aftur á forsíđu

Fréttir FSH

9. maí 2012

Vorpróf í FSH

Nú er kennslu lokið og hefðbundin próftíð tekin við. Fyrsti prófdagur er í dag og sá síðasti verður þann 21. maí. Sjúkra- og endurtektarpróf verða þann 23. maí og prófsýning 24. maí.
Skólanum verður slitið við hátíðlega athöfn í Húsavíkurkirkju þann 26. maí kl. 11.00, að þessu sinni verða 40 nemendur brautskráðir frá skólanum.

30. apríl 2012

Herdís Ţ. Sigurđardóttir ráđin ađstođarskólameistari

Herdís Þ. Sigurðardóttir hefur verið ráðin í 50% starf aðstoðarskólameistara við FSH til næstu fimm ára frá         1. ágúst 2012 að telja. Herdís er 36 ára gömul, gift Óla Halldórssyni forstöðumanni Þekkingarnets Þingeyinga. Þau hjónin eiga þrjú börn og vænta þess fjórða innan fárra daga. Herdís lauk meistaraprófi í íslenskum málvísinum frá Háskóla Íslands árið 2002 og námi í kennslufræðum til kennsluréttinda frá Háskólanum á Akureyri árið 2006. Herdís hefur starfað sem íslenskukennari við Framhaldsskólann frá árinu 2006. 

23. apríl 2012

Glćsilegur árangur FSH í Söngkeppni framhaldsskólanna

FSH hreppti þriðja sætið í Söngkeppni framhaldsskólanna sem fram fór sl. laugardag. Ruth Ragnarsdóttir keppti fyrir hönd skólans og stóð sig frábærlega, ljóst er að þar er á ferð söngkona sem á framtíðina fyrir sér. Alls tóku 12 skólar þátt í úrslitakeppninni, Tækniskólinn fór með sigur af hólmi og VMA hafnaði í öðru sæti. Við óskum Ruth innilega til hamingju með árangurinn.  Sjá nánar á 640.is

18. apríl 2012

Ruth keppir til úrslita í Söngkeppni framhaldsskólanna

FSH er á meðal þeirra skóla sem komnir eru úrslit í Söngkeppni framhaldsskólanna. Ruth Ragnarsdóttir syngur fyrir hönd skólans og nýtur þar liðsinnis föður síns Ragnars Þórs Jónssonar sem leikur undir á gítar. Keppnin fer fram í Reykjavík n.k. laugardag og verður sjónvarpað beint á RÚV. Sjá nánar á mbl.is

18. apríl 2012

Nćstu sýningar á Gauragangi

Leikfélag skólans Píramus og Þispa frumsýndi leikritið Gauragang eftir Ólaf Hauk Símonarson sl. fimmtudag. Stór og glæsilegur hópur nemenda skólans tekur þátt í sýningunni undir styrkri leikstjórn Sigurðar Illugasonar. Við hvetjum alla til þess að drífa sig í leikhús, næstu sýningar eru sem hér segir:

Miðvikudaginn 18. arpíl kl. 20.00
Fimmtudaginn 19. arpíl - Sumardaginn fyrsta - kl. 16.00
Föstudaginn 20. apríl kl. 20.00 og
Sunnudaginn 22. arpíl kl. 20.00

Sýnt er í Samkomuhúsinu og miðaverð aðeins kr. 1500.  Hægt er að panta miða í síma 464-1129.

17. apríl 2012

Dr. Ingibjörg Gunnarsdóttir nćringarfrćđingur í heimsókn

Dr. Ingibjörg Gunnarsdóttir næringarfræðingur heimsótti skólann í dag og fræddi nemendur og starfsfólk um næringu og hollustu matvæla.  Í erindi sínu lagði Ingibjörg m.a. áherslu á mikilvægi þess að borða ávexti og grænmeti, þá ráðlagði hún öllum að taka lýsi yfir vetrartímann.  Það var einstaklega ánægjulegt að fá Ingibjörgu í heimsókn ekki síst þar sem hún er fyrrum nemandi Framhaldsskólans.

17. apríl 2012

Jarđfrćđiferđ í JAR203

Nemendur í JAR203 sem er  áfangi í jarðsögu fóru 17.apríl í jarðfræðiferð á Tjörnes. Efsti hluti Tjörneslaganna þ.e. Tígulskeljalögin og Krókskeljalögin voru skoðuð í Tungukambi. Í Krókskeljalögunum má sjá á steingervingum verulega kólnun á sjávarhita frá því sem áður var og einnig er um ¼ tegunda þar ættaður úr Kyrrahafinu. Aldur neðrihluta Krókskeljalaganna er um 3,6 milljón ára, þau voru því að hlaðast upp stuttu fyrir ísöld og kólnun í N-Atlandshafinu er hafin og einnig hefur opnast um Beringssund milli Kyrrahafs og Atlandshafs vegna flekareks.

Myndir úr ferðinni eru komnar inn á netið

G.B.

30. mars 2012

Gleđilega páska

Nemendafélagið bauð uppá páskabingó í gær og vinningarnir voru að sjálfsögðu í formi páskaeggja af ýmsum stærðum og gerðum. Páskafríið hófst í dag og stendur til miðvikudagsins 11. apríl en þá hefst skólastarf á ný. Ekkert hlé verður þó gert á æfingum hjá leikfélagi skólans Píramusi og Þispu þar sem áformað er að frumsýna Gauragang um næstu helgi.

23. mars 2012

Stuttmyndasýning í dönsku 203

Nemendur í dönsku 203 buðu uppá mjög skemmtilega stuttmyndasýningu í vikunni. Krakkarnir höfðu fengið það verkefni að gera myndband um skólann sinn með það að markmiði að kynna hann sem best fyrir dönskumælandi fólki.  Boðið var uppá 10 stuttmyndir þar sem farnar voru ýmsar leiðir til þess að nálgast viðfangsefnið. Skólahúsnæðið og öll aðstaða var mynduð í bak og fyrir og viðtöl tekin við nemendur og starfsfólk - að sjálfsögðu á dönsku. Hér má sjá myndir frá stuttmyndasýningunni.

21. mars 2012

Skólafundur í FSH

Í gær komu nemendur og starfsfólk skólans saman á árlegum skólafundi. Skólafundir í FSH eru lýðræðislegur vettvangur fyrir stefnumótandi umræðu í skólanum. Á fundinum unnu nemendur og starfsfólk saman í hópum að fyrirfram ákveðnum viðfangsefnum.  Að þessu sinni voru tvö mál til umræðu, annars vegar nám, kennsluhættir og námsmat og hins vegar 25 ára afmæli skólans.  Skólafundir í FSH eru með svonefndu „þjóðfundarsniði“ þar sem áhersla er lögð á virka þátttöku allra í umræðunni.  Hóparnir unnu mjög vel og skiluðu í lok fundar góðum og gagnlegum tillögum sem nýtast munu vel í viðleitni okkar til að efla skólastarfið enn frekar.  Myndir frá skólafundi eru hér.



Stađsetning:

Forsíđa > Fréttir

Stjórnborđ

Texti í sjálfgefinni stćrđ Texti í stórri stćrđ Hamur fyrir sjónskerta
In EnglishPa DanskPa svenskaIn Deutsch

Nemendafélag FSH