Beint á leiđarkerfi vefsins
Aftur á forsíđu

Fréttir FSH

29. september 2011

Kokkađ í kjallaranum

Úr kjallaranum berst nú ljúfur ilmur um hús skólans.  Nemendur á starfsbraut fengu í dag það verkefni að elda ljúffengan mexíkóskan rétt. Matreiðslan gekk vel hjá krökkunum og greinilegt að þarna voru efnilegir kokkar á ferð.

22. september 2011

Landinn í heimsókn

Þórhildur Ólafsdóttir dagskrárgerðarkona heimsótti skólann í dag ásamt myndatökumanni frá RÚV. Tilefni heimsóknarinnar var að taka viðtal við Aðalbjörn Jóhannsson nemanda skólans. Viðtalið mun væntanlega birtast innan skamms í Landanum.

21. september 2011

FSH verđur heilsueflandi framhaldsskóli

Þátttaka Framhaldsskólans á Húsavík í verkefninu Heilsueflandi framhaldsskóli hófst með formlegum hætti í gær. Kristján Þór Magnússon verkefnastjóri hjá Lýðheilsustöð og fyrrverandi nemandi skólans kom færandi hendi með fána og skilti þessu til staðfestingar. Bergur Elías Ágústsson bæjarstjóri dró ásamt Kristjáni Þór fánann að húni og að því búnu óskuðu þeir skólanum allra heilla í þessu mikilvæga verkefni.  Nemendur og starfsfólk skólans fengu afhenta vatnsbrúsa að gjöf frá Lýðheilsustöð og er þeim ætlað að hvetja okkur til að drekka meira vatn . Dagskránni lauk  með tónlistarflutningi nemenda skólans á „litla sviðinu“ sem staðsett er í nýrri setustofu nemenda í kjallara skólans.

19. september 2011

FSH verđur heilsuskóli

Þriðjudaginn 20. september kl. 09.30 verður FSH heilsuskóli. Fulltrúar frá Lýðheilsustöð munu sækja skólann heim með skilti og fána og hefst þá heilsuskólaverkefnið formlega. Sérstök athöfn með skemmtiatriðum frá nemendum fer fram í skólanum af þessu tilefni. Nánar um þetta verkefni má sjá á vef Lýðheilsustöðvar / Landlæknisembættis http://www2.lydheilsustod.is/

14. september 2011

Viđ ţökkum fyrir góđan fund

Kynningarfundur fyrir foreldra nýnema var haldinn í skólanum gær. Við þökkum þeim sem mættu fyrir góðar umræður og vonum að fundurinn hafi verið gagnlegur. Myndir frá foreldrafundi eru hér.

13. september 2011

Kynningarfundur fyrir foreldra nýnema

Kynningarfundur fyrir foreldra nýnema verður haldinn í skólanum í kvöld og hefst fundurinn kl. 20.00.  Á fundinum munu stjórnendur skólans og námsráðgjafi fjalla um stefnu skólans, skólaregur og þjónustu við nemendur. Þá mun félags- og forvaranafulltrúi kynna forvarnastarf og félagslíf í skólanum ásamt nemendum úr stjórn nemendafélags skólans. Loks munu fulltrúar úr foreldraráði skólans kynna starfsemi foreldraráðs. 

2. september 2011

Busavígsla

Nýnemar voru teknir inn í samfélag eldri nema skólans í blíðu veðri í gær. Það voru væntanlegir útskriftarnemar sem önnuðust vígsluna og þurftu busar að yfirstíga hinar ýmsu þrautir undir þeirra stjórn. Það reyndi t.a.m. mjög á líkamlegt atgervi hópsins í hinum ýmsu íþróttum, þá tóku busar lagið og plönkuðu fyrir starfsfólk og nemendur Borgarhólsskóla. Að því loknu hélt hópurinn syngjandi og með bros á vör til hinnar eiginlegu vígsluathafnar. Að venju hétu nýnemar skólanum allri sinni hollustu og tryggð og fór athöfnin að þessu sinni fram í andapollinum. Að lokum var innvígðum boðið uppá súkkulaðiköku og svaladrykk við skólann. Myndir frá busavígslu eru hér.



Stađsetning:

Forsíđa > Fréttir

Stjórnborđ

Texti í sjálfgefinni stćrđ Texti í stórri stćrđ Hamur fyrir sjónskerta
In EnglishPa DanskPa svenskaIn Deutsch

Nemendafélag FSH