Beint á leiđarkerfi vefsins
Aftur á forsíđu

Fréttir FSH

20. desember 2011

Gleđileg jól

Framhaldsskólinn á Húsavík óskar nemendum og starfsfólki skólans, og fjölskyldum þeirra, gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári, – með þökk fyrir ánægjulegt samstarf á árinu sem er að líða.

6. desember 2011

Nemendaverkefni í líffrćđi

Snæfríður Dröfn Pétursdóttir, 4. árs nemi á Náttúrufræðibraut við Framhaldsskólann á Húsavík, hefur skilað ritgerð um rannsóknarverkefni sitt í verkefnaáfanganum LÍF303.  Ritgerðin heitir "Áhrif hækkunar hitastigs sjávar á lífríki þangfjöru í Bakkakrók norðan Húsavíkur" en Snæfríður bar saman rannsóknaniðurstöður á sama sniði í Bakkakrók frá 1996 og 2008.

6. desember 2011

Jólavist á sal

Þann 1. desember komu nemendur saman í sal skólans og gerðu sér glaðan dag fyrir próftíðina framundan með því spila félagsvist. Spilamennskan gekk vel og þeir sem voru ekki með allt alveg á hreinu í upphafi voru fljótir að læra. Menn voru þó misheppnir með gjafirnar og í lokin fór það svo að Stefán Óli Valdimarsson og Þórunn Birna Jónsdóttir stóðu uppi sem sigurvegarar. Óheppnust allra voru þau Heiðdís Hafþórsdóttir og Stefán Júlíus Aðalsteinsson og Heiðdís gerði sér jafnframt lítið fyrir og hrifsaði  til sín setuverðlaunin. Eins og sjá má ríkti ljúf jólastemning á sal skólans þessa morgunstund, enda fátt jólalegra en jólatónlist, kertaljós og kátir krakkar að spila vist.  

25. nóvember 2011

Kaffihúsakvöldiđ Gunna 2011

Gunna er orðinn fastur liður í félagslífi NEFlima FSH og er í umsjón NEF stjórnar en Túnráð aðstoðaði stjórnina í ár. Í gærkvöldi var Gunna haldin í sal FSH og hefur sjaldan verið glæsilegri. Mjög fjölbreytt dagskrá var í boði: Tískusýning í umsjóna áfangans Tíska, húð og hár, tónlistaratriði í boði skólahljómsveitanna sem Axel Flóvent, Brynjar, Jón Ásþór og Gunnar Ingi skipa, Líney söng eins og engill við undirleik Matta og Kristjáns, léttir samkvæmisleikir voru svo í umsjón kynna kvöldsins sem voru Aðalbjörn og Selmdís. Samkvæmisleikirnir voru viðureign á milli árganga í skólanum og voru það Mehico-farar sem rústuðu keppninni. Í leikjunum á keppendur m.a. að útvega ýmsa hluti eins og klósettpappír og brjóstahaldara, troða eins mörgum vínberjum upp í sig og þeir gátu, hrósa hverjir öðrum, senda sms og leita uppi nælur.
Útskriftarnemar sáum um veitingar og þar vantaði ekkert upp á terturnar og vöfflurnar.
Að dagskrá lokinni í skólanum skundaði mannskapurinn niður í íþróttahöll í jólatarzan. Þar fór fram teymakeppni en þeir sem spreyttu sig voru Benni  og Grétar, Arnór og Stefán Júlíus, Davíð og Gunnar Berg, Ísleifur og Lena, Andri Dan og Kristófer, Snorri og Ragnar, Hafþór og Sigþór og Jóhanna og Inga. Það voru Snorri og Ragnar sem sigruðu þessa spennandi keppni en enginn slapp undan þeim.
Hægt er að sjá myndir frá kvöldinu í myndaalbúmi skólans

23. nóvember 2011

Eyrún Ýr heimsćkir nemendur í íslensku

Eyrún Ýr Tryggvadóttir rithöfundur heimsótti nemendur í íslensku 503 í dag. Eyrún Ýr starfar sem forstöðumaður Bókasafnsins á Húsavík. Hún hefur sent frá sér þrjár skáldsögur. Árið 2008 kom út bókin Hvar er systir mín og ári síðar sjálfstætt framhald þeirrar sögu, Fimmta barnið. Þriðja bókin, Ómynd, kom út árið 2011. Við óskum Eyrún Ýr til hamingju með nýju bókina og þökkum henni innlitið. Hér má sjá myndir frá heimsókn Eyrúnar ásamt myndum úr kennslustundum í skólanum þennan dag.

16. nóvember 2011

Dagur íslenskrar tungu haldinn hátíđlegur

Dagur íslenskrar tungu var haldinn hátíðlegur í dag. Af því tilefni komu nemendur og starfsfólk skólans saman á sal og gerðu sér glaðan dag með söng, hljóðfæraleik og upplestri ljóða. Allir þeir sem komu að skemmtuninni stóðu sig með mikilli prýði.
Að loknu ávarpi skólameistara flutti Brynja Rún Benediktsdóttir erindi um ævi Jónasar Hallgrímssonar og sá síðan um að kynna aðra flytjendur til leiks, en dagskráin var sem hér segir:

8. nóvember 2011

Skógarferđ á forvarnardegi gegn einelti

8. nóvember hefur verið valinn sem sérstakur dagur í baráttunni gegn einelti hér á landi. Í tilefni dagsins hefur verið ákveðið að ganga frá (þjóðar) sáttmála um að vinna gegn einelti. Það verður gert með athöfn þar sem fulltrúar Ríkistjórnar Íslands, fulltrúar félaga og samtaka undirrita sáttmálann.  Af því tilefni að þessi dagur er haldinn í dag ákvað stjórn NEF að drífa alla nemendur í skógarferð og eiga góða stund saman við eldstæði með kakó og sykurpúða. Veðurguðirnir léku við okkur og nokkrir sprækir strákar af leikskólanum Grænuvöllum ásamt starfsfólki tók á móti okkur og aðstoðaði við að kveikja upp í eldstæðinu. Kakóið og sykurpúðarnir runnu ljúflega ofan í mannskapinn eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.

 

8. nóvember 2011

Alţjóđlegur dagur gegn einelti

8. nóvember hefur verið valinn sem sérstakur dagur í baráttunni gegn einelti hér á landi. Af tilefni dagsins hefur verið ákveðið að ganga frá (þjóðar) sáttmála um að vinna gegn einelti. Það verður gert með athöfn þar sem fulltrúar Ríkistjórnar Íslands, fulltrúar félaga og samtaka undirrita sáttmálann.

4. nóvember 2011

Nemendur úr 10. bekk Borgarhólsskóla í heimsókn

Fimmtudaginn 3. nóvember heimsóttu 10. bekkingar úr Borgarhólsskóla skólann. Krakkarnir fengu kynningu á náminu og félagslífinu í skólanum, skoðuðu sig um í skólanum og kíktu auk þess í kennslustundir undir leiðsögn nemenda úr stjórn nemendafélagsins. Að lokum var öllum boðið uppá súkkulaði og svaladrykk. Þetta var afar ánægjuleg heimsókn og vonandi sjáum við sem flesta úr þessum skemmtilega hópi aftur í skólanum í haust.  Hér má sjá myndir frá heimsókninni.

3. nóvember 2011

Sigurveig Gunnarsdóttir gefur út sína fyrstu bók

Nýlega kom út bókin Hafmeyjan á Laugarvatni eftir Sigurveigu Gunnarsdóttur. Sigurveig er 17 ára og nemandi á öðru ári hér í FSH. Bókin er fyrsta bók höfundar og segir frá vinkonunum Láru og Maríu sem dvelja í sumarbústað við Laugarvatn. Dvöl þeirra í sumarbústaðnum verður öðruvísi en ætlað var þegar þær kynnast hafmeyjunni Hafrósu. Við óskum Sigurveigu til hamingju með bókina og óskum henni velfarnaðar á ritvellinum.



Stađsetning:

Forsíđa > Fréttir

Stjórnborđ

Texti í sjálfgefinni stćrđ Texti í stórri stćrđ Hamur fyrir sjónskerta
In EnglishPa DanskPa svenskaIn Deutsch

Nemendafélag FSH