Fréttir FSH
30. september 2010
Valáfangar á nćstu önn kynntir í flýtileiđ á vef FSH
Allir valáfangar sem í boði eru á vorönn 2011 eru nú kynntir í flýtileið á heimasíðu FSH. Um er að ræða tólf áfanga af ýmsu tagi og eru nemendur eindregið hvattir til að kynna sér úrvalið. Vakin er sérstök athygli á því að vali á valáföngum verður að vera lokið 8. október.
23. september 2010
Náms- og ćfingaferđ afrekshóps FSH í samstarfi viđ Völsung

Stór og myndarlegur hópur 25 nemenda á afrekssviði Framhaldsskólans á Húsavík fóru góða ferð til Reykjavíkur helgina 17.-19. sept. Ferðin var liður í undirbúningi fyrir æfingar afrekshópsins á þessari önn. Knattspyrnufélagið Valur bauð hópnum að dvelja hjá sér við æfingar og jafnframt að fá ýmis konar fræðslu en þeir hafa mjög gott skipulag í öllu sínu starfi og þjálfun.
16. september 2010
Uppistand
Grínistarnir í Mið-Íslandi voru með uppistand fyrir nemendur FSH í hádeginu í gær í sal skólans.
Þeir sem komu fram voru Ari Eldjárn, Bergur Ebbi, Dóri DNA (barnabarn Nóbelskáldsins)og Jóhann Alfreð.
15. september 2010
Hafţór Mar í U-17 ára landsliđshópnum
Hafþór Mar Aðalgeirsson, nýnemi hér í FSH, hefur verið valinn til að leika með undir 17 ára landsliði Íslands í knattspyrnu sem tekur þátt í riðlakeppni EM nú síðar í mánuðinum. Hafþór hefur undanfarið leikið með meistaraflokki Völsungs við góðan orðstír og var einnig í U17 hópnum sem lék á Norðurlandamótinu í sumar.
15. september 2010
Foreldrafundur í FSH
Kynningarfundur fyrir foreldra nýnema var haldinn í skólanum í gær. Foreldrar létu ekki rok og rigningu aftra sér frá því að mæta og var fjölmenni í sal skólans. Á fundinum fjölluðu m. a. stjórnendur um starf skólans, skólareglur og áfangakerfið. Ingólfur Freysson íþróttakennari sagði frá afreksíþróttaáföngum og samstarfi skólans við Íþróttafélagið Völsung.
8. september 2010
Göngum, göngum!
Starfsfólk Framhaldsskólans á Húsavík þekkir vel mikilvægi góðs fordæmis þegar kemur að hollum lífsháttum. Um nokkurt skeið hefur því staðið til boða að koma saman tvisvar í viku og ganga um bæinn og nágrenni hans undir styrkri leiðsögn frumkvöðulsins Ingólfs Freyssonar. Mæting hefur verið ágæt og flestir verið sammála um gagnsemi þessa framtaks.
1. september 2010
Skemmtiferđ nemenda FSH
Mánudaginn 30. ágúst héldu nemendur skólans í hina árlegu skemmtiferð. Að þessu sinni var ferðinni heitið til Akureyrar þar sem farið var í krullu í Skautahöllinni, grillað í Kjarnaskógi og endað í keilu í Keilunni. Mjög góð þátttaka var í ferðinni og skemmtu nemendur sér vel.







