Beint á leiđarkerfi vefsins
Aftur á forsíđu

Fréttir FSH

17. desember 2010

Jólakveđja frá Framhaldsskólanum á Húsavík

 

Við óskum nemendum okkar, fjölskyldum þeirra, Húsvíkingum og Þingeyingum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

 

Þökkum ánægjulegt samstarf á liðnu ári.

 

Starfsfólk FSH

 

 

17. desember 2010

Jólafrí

Skrifstofa skólans er í jólafríi frá hádegi 17. desember.

Opnar aftur þriðjudaginn 4. janúar kl. 10.00.

29. nóvember 2010

Skógarferđ nemenda í Uppeldisfrćđi 103

Hefð er fyrir því að nemendur í uppeldisfræði skelli sér í heimsókn á leikskólann Grænuvelli og kynni sér starfið þar.

27. nóvember 2010

Kaffihúsakvöldiđ Gunna

Hefð er fyrir því að halda kaffihúsakvöldin Gunnu og Jón af NEF framhaldsskólans. Nemendur hittust af því tilefni í sal skólans í fimmtudagskvöldið 25. nóv. og skemmtu sér fram eftir kvöldi.

Dagskráin hófst með því að horft var á þau myndbönd sem nemendur sendu inn í keppni Snilldarlausna Marels og Laufey skólastýra afhenti sigurvegurum keppninnar viðurkenningu frá skólanum. Því næst bauð NEF upp á dýrindis skúffuköku frá Heimabakaríi sem rann ljúflega niður.

Stjórn NEF var búin að útbúa Gunnu-quiz sem reyndir heldur betur á nemendur en það voru Líney Gylfadóttir og Sigrún Lilja Sigurgeirsdóttir sem sigruðu með 20 stigum og hlutum að launum Húsavíkurbréf.

Kvöldið tókst virkilega vel og nemendur fóru saddir og sælir heim.

23. nóvember 2010

Sigurđur Ragnar Eyjólfsson landsliđsţjálfari kvenna í knattspyrnu í heimsókn

Landsliðsþjálfari kvenna í knattspyrnu var með æfingar og fyrirlestur fyrir nemendur á íþróttaafreksbraut FSH sl. fimmtudag. Sigurð þarf vart að kynna en hann náði þeim einstaka árangri að koma landsliði kvenna á EM 2009. Fimmtudagurinn hófst með tveggja klukkustunda æfingu í Íþróttahöllinni og síðan var Sigurður með mjög fróðlegan fyrirlestur um markmið og leiðir afrekstíþróttamanna. Deginu lauk svo með sérstökum fundi með stúlkunum á afreksbrautinni.

Mikil ánægja var með þessa heimsókn Sigurðar og var margt sem bæði nemendur,kennarar og þjálfarar Völsungs lærðu af fræðum og reynslu þessa góða þjálfara. Afrekshópurinn hefur æft stíft á þessari önn og verður haldið áfram á vorönn 2011. Samhliða markvissri þjálfun verður haldið áfram að miðlað til nemenda ýmiskonar fræðslu um þjálfun og mataræði.

Þetta samstarfsverkefni FSH og Völsungs hefur gengið mjög vel og nemendur hafa stundað æfingar og þjálfun af dugnaði og elju. Þeir Ingólfur Freysson frá FSH og Jóhann Kristinn Gunnarsson frá Völsungi hafa leitt þetta starf.

19. nóvember 2010

Nemendur úr FSH sigra í Snilldarlausnum Marel, hugmyndasamkeppni Framhaldsskólanna!

Þrír nemendur úr Framhaldsskólanum á Húsavík, þær Lilja Björk Hauksdóttir, Magnea Ósk Örvarsdóttir og Sigurveig Gunnarsdóttir, sigruðu í hugmyndasamkeppninni Snilldarlausnir Marel sem er haldin árlega í tengslum við Alþjóðlega athafnaviku.

Verkefnið að þessu sinni var pappakassi og höfðu þær vinkonurnar nýtt gamlan pappakassa sem geymslu fyrir prjónahnykkla á einfaldan og snjallan hátt.

Verðlaunin fyrir sigur í samkeppninni er 100 þúsund krónur sem borgarstjóri Reykjavíkur, Jón Gnarr, afhenti hönnuðunum við hátíðlega athöfn í gærkvöldi.

Allur skólinn fagnar þessum tíðindum innilega og við óskum stúlkunum að sjálfsögðu til hamingju með þennan frábæra árangur!

Nánir upplýsingar um keppnina og úrslit hennar er að finna á snilldarlausnir.is og mbl.is

18. nóvember 2010

Dagur íslenskrar tungu haldinn hátíđlegur

Þriðjudagurinn 16. nóvember var Dagur íslenskrar tungu. Af því tilefni var haldin hátíð í sal Framhaldsskólans á Húsavík þar sem nemendur og starfsfólk gerðu sér glaðan dag með söng, hljóðfæraleik og upplestri nokkurra ljóða og eins frumsamins texta. Þema dagsins var ástin í öllum sínum myndum.
Allir þeir sem komu að skemmtuninni stóðu sig með mikilli prýði. Hér má sjá myndir.

14. nóvember 2010

Norrćni loftslagsdagurinn í FSH

Í tilefni af norræna loftslagsdeginum, fimmtudaginn 11. nóvember, var stundarskrá dagsins brotinn upp hér í FSH. Allir voru kallaðir á sal skólans þar sem nemendur í jarðfræði 173/213 voru með viðamikla kynningu á sögu loftslagsbreytinga á jörðinni.
Undir leiðsögn kennarans, Gunnars Baldurssonar, og Arnhildar Pálmadóttur arkíteks (sem aðstoðaði við framsetningu efnis o. fl.) höfðu nemendurnir samið ríflega klukkustundar langa kynningu sem reyndist bæði afar fróðleg og skemmtileg.  Óhætt er að segja að almenn ánægja hafi ríkt með frammistöðu þessa efnilega hóps. Hér má sjá myndir.

8. nóvember 2010

Heimsókn í Safnahúsiđ

Nemendur í Upp 103 luku nýlega við kafla í kennslubókinni um Börn og bækur og gripu því tækifærið og skelltu sér á sýningu í Safnahúsinu: Þetta vilja börnin sjá!

Á sýningunni eru sýndar myndskreytingar í barnabækur í tugatali og bækurnar fylgja með. Nemendurnir höfðu gaman af og fannst sýningin virkilega flott.

1. nóvember 2010

Hafralćkjarskóli sigurvegari í Spurningakeppni grunnskólannna

Spurningakeppni grunnskólanna í Þingeyjarsýslum var haldin í Framhaldsskólanum á Húsavík föstudaginn 29. október. Eftir snarpa keppni var það Hafralækjarskóli sem hreppti sigurbikarinn. Hafralækjarskóli sigraði Reykjarhlíðarskóla í æsispennandi úrslitakeppni 16 - 14. Auk bikars hlaut nemendafélag skólans 25 þús. kr. sigurlaun.

Eftirtaldir skipuðu sigurlið Hafralækjarskóla: Hrannar Guðmundsson, Hugrún Rúnarsdóttir og Sigríður Atladóttir.

FSH þakkar öllum liðum fyrir þátttökuna og þá drengilegu baráttu sem þau sýndu. 

Hér er hægt að sjá myndir frá keppninni.



Stađsetning:

Forsíđa > Fréttir

Stjórnborđ

Texti í sjálfgefinni stćrđ Texti í stórri stćrđ Hamur fyrir sjónskerta
In EnglishPa DanskPa svenskaIn Deutsch

Nemendafélag FSH