Beint á leiđarkerfi vefsins
Aftur á forsíđu

Fréttir FSH

10. desember 2009

Bóksala FSH á vorönn 2010

Bóksalan verður með sama sniði og síðustu haustönn.  Bókaverslun Þórarins Stefánssonar á Húsavík mun selja nýjar bækur. 

27. nóvember 2009

Kaffihúsakvöldiđ Gunna

Í gærkvöldi hittust nemendur og kennarar FSH á sal skólans þar sem stjórn NEFs stóð fyrir hinu hefðbundna kaffihúsakveldi Gunnu. Það ríkti afar hugguleg stemming á sal skólans, sem skreyttur hafði verið með jóla- og kertaljósum.

27. nóvember 2009

Heimsókn á leikskólann Grćnuvelli

Síðastliðinn miðvikudag fóru nemendur í Uppeldisfræði 103 í heimsókn á leikskólann Grænuvelli. Búið var að skipta nemendum í hópa og hver hópur heimsótti eina leikskóladeild. Nemendur áttu að kynna sér starfið á gagnrýninn hátt og kynna það svo fyrir samnemendum sínum.

20. nóvember 2009

Nemendur úr Borgarhólsskóla í heimsókn

Föstudaginn 20. nóvember sótti föngulegur hópur 10. bekkinga úr Borgarhólsskóla okkur heim ásamt umsjónarkennara sínum og námsráðgjafa. Gestirnir fengu kynningu á náminu og því öfluga og skemmtilega félagslífi sem nemendur standa fyrir. 

17. nóvember 2009

Dagur íslenskrar tungu

Dagur íslenskrar tungu var haldinn hátíðlegur í skólanum í gær.
Af því tilefni komu nemendur og starfsfólk skólans saman á sal þar sem dagskráin hófst með ávarpi skólameistara.

17. nóvember 2009

Leiksýning

Í áfanganum listir og skapandi starf hafa Arnljót Anna og Vilberg Lindi verið að kynna sér heim leikhússins. Í kjölfarið æfðu þau leikritið um Rauðhettu og sýndu fyrir nokkra starfsmenn skólans og gekk sýningin afskaplega vel.

3. nóvember 2009

Nemendur í EFN303 á námskeiđi um orkuvinnslu

Nemendur í EFN303 ásamt kennara sínum voru á námskeiðinu “Viltu verða orkubóndi?” Nýsköpunarmiðstöð Íslands hélt námskeiðið

16. október 2009

Hugarflug á sal

Miðvikudaginn 14. október tóku allir nemendur skólans þátt í hugmyndavinnu undir stjórn nemendafélagsins. Markmiðið var að ræða um félagslífið í skólanum og setja fram hugmyndir um enn frekari eflingu þess. Margar frábærar hugmyndir fóru á blað og gaman verður að sjá þær verða að veruleika. Myndir frá hugarflugsfundinum má sjá hér.

18. september 2009

Bergvin í heimsókn

Í dag kom hann Bergvin frá Ungmennadeild Blindrafélagsins til okkar og var með kynningu á Evrópu unga fólksins (http://www.euf.is/euf/) auk þess sem hann sagði frá fötlun sinni og því sem henni fylgir.

15. september 2009

Kynningarfundur fyrir foreldra nýnema

Kynningarfundur fyrir foreldra og forráðamenn nýnema verður haldinn í skólanum ţriðjudaginn 15. september kl. 20.00.


Stađsetning:

Forsíđa > Fréttir

Stjórnborđ

Texti í sjálfgefinni stćrđ Texti í stórri stćrđ Hamur fyrir sjónskerta
In EnglishPa DanskPa svenskaIn Deutsch

Nemendafélag FSH