Fréttir FSH
30. september 2008
Námsferð í JAR103

Nemendur og kennari í JAR103 fóru í námsferð 25. sept. Aðalviðfangsefni ferðarinnar var að skoða eldvirk svæði í Mývatnssveit. Eldstöðvar frá Mývatnseldum (1724-1729) og Kröflueldum (1975-1985) voru skoðaðar, einnig var hrauninu frá Lúdentsborgum – Þrengslaborgum sem kom upp fyrir um 2000 árum fylgt frá Dimmuborgum niður í Aðaldal. Þetta hraun hefur verið nefnt yngra Laxárhraunið og er alsett gervigígum frá Skútustöðum niður í Laxárdal og Aðaldal.
24. september 2008
Við þökkum fyrir góðan fund
Kynningarfundur með foreldrum og forráðamönnum nýnema var haldinn í skólanum í gær 23. september. Við viljum þakka foreldrum fyrir komuna og þátttökuna en mæting á fundinn var afar góð.
19. september 2008
Kynningarfundur
Kynningarfundur fyrir foreldra/forráðamenn nýnema verður haldinn í skólanum þriðjudaginn 23. september kl. 20.00. Tilgangur fundarins er að kynna foreldrum helstu þætti í starfi skólans og verður dagskráin sem hér segir:
Laufey Petrea Magnúsdóttir skólameistari fjallar um hlutverk skólans og mikilvægi þess að eiga gott samstarf við foreldra.
Gunnar Baldursson aðstoðarskólameistari fjallar um skólareglur, reglur um skólasókn og miðannarmat.
Björgvin R. Leifsson áfangastjóri fjallar um námsframboð skólans, áfangakerfið og val á áföngum.
Ingibjörg Bragadóttir námsráðgjafi fjallar um þjónustu námsráðgjafa.
Sigríður Hauksdóttir félagsmála- og forvarnafulltrúi og fulltrúar úr stjórn NEF nemendafélags skólans fjalla um félagslíf og forvarnir.
4. september 2008
Busavígsla

Busadagar voru fyrstu daga þessarar annar en þá voru nýnemar boðnir velkomnir í skólann með ýmsum hefðum og venjum eins og hákarli, mysu og lýsi í morgunmat, sér útbúnum gönguleiðum merktum busum og sérstakri afbusun sem fór fram í fjörunni. Það eru útskriftarnemar sem sjá um busavígsluna.
Busarnir voru teymdir um bæinn í svörtum ruslapokum með hallærislegar andlitsskreytingar. Fyrsti viðkomustaður var Borgarhólsskóli þar sem að krakkarnir heilsuðu uppá fólkið nemendur og starfsfólk og mátti sjá vandræðasvip á andlitum busanna. Það er nefnilega ekkert gaman að syngja Prumpulagið af fullum krafti fyrir framan gamla kennara og skólafélaga.
Því næst var haldið á leiksskólann Grænuvelli og voru litlu krílin heldur betur undrandi
2. september 2008
Skemmtiferð
Síðast liðinn föstudag fór fríður hópur nemenda í skemmtiferð í boði skólans, Ungmennahúss og NEF. Í ferðina fóru hátt í 60 nemendur.
Fyrsti áfangastaður var Torfunes. Þar tók Diddi hennar Brynhildar okkar á móti okkur og lánaði okkur reiðhöllina þar sem við snæddum grillaðar pylsur. Við fengum útsýnisferð um svæðið sem er stórglæsilegt.
Því næst var haldið á Akureyri í keilu þar sem menn fóru mismikið á kostum með kúlurnar en allir skemmtu sér konunglega.
Þegar menn voru orðnir heitir og klárir í meira var









