Fréttir FSH
20. desember 2007
Gleðileg jól
Óskum nemendum FSH, Húsvíkingum og Þingeyingum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
Þökkum gefandi samstarf á liðnu ári.
Starfsfólk FSH
Skrifstofa skólans verður lokuð frá og með 21. desember 2007 til og með 3. janúar 2008.
Föstudaginn 4. janúar verður opið frá 10 - 14 og mánudaginn 7. janúar frá 8 - 15.
5. desember 2007
Jólakort til sölu
Í vetur hafa nemendur á starfsbraut verið í myndlistartímum og þar kviknaði sú hugmynd að hanna jólakort og gefa út. Allir nemendur gerðu nokkrar myndir
4. desember 2007
Hvatningarverðlaun ÖBÍ 2007
Í gær, á degi fatlaðra, voru Hvatningarverðlaun ÖBÍ veitt í fyrsta sinn.
Verðlaunin voru veitt í þremur flokkum og í flokki stofnana hlaut Starfsendurhæfing Norðurlands þessa miklu viðurkenningu. Starfsendurhæfing Norðurlands er nýlega útvíkkuð starfsemi BYRS Starfsendurhæfingar sem var stofnuð hér á Húsavík árið 2003 með þátttöku Félags- og skólaþjónustu Þingeyinga, Framhaldsskólans á Húsavík og Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga. Hugmyndafræðingur þessa verkefnis og aðaldriffjöður er Geirlaug Björnsdóttir framkvæmdastjóri Starfsendurhæfingar Norðurlands.







