Fréttir FSH
20. desember 2007
Gleðileg jól
Óskum nemendum FSH, Húsvíkingum og Þingeyingum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
Þökkum gefandi samstarf á liðnu ári.
Starfsfólk FSH
Skrifstofa skólans verður lokuð frá og með 21. desember 2007 til og með 3. janúar 2008.
Föstudaginn 4. janúar verður opið frá 10 - 14 og mánudaginn 7. janúar frá 8 - 15.
5. desember 2007
Jólakort til sölu
Í vetur hafa nemendur á starfsbraut verið í myndlistartímum og þar kviknaði sú hugmynd að hanna jólakort og gefa út. Allir nemendur gerðu nokkrar myndir
4. desember 2007
Hvatningarverðlaun ÖBÍ 2007
Í gær, á degi fatlaðra, voru Hvatningarverðlaun ÖBÍ veitt í fyrsta sinn.
Verðlaunin voru veitt í þremur flokkum og í flokki stofnana hlaut Starfsendurhæfing Norðurlands þessa miklu viðurkenningu. Starfsendurhæfing Norðurlands er nýlega útvíkkuð starfsemi BYRS Starfsendurhæfingar sem var stofnuð hér á Húsavík árið 2003 með þátttöku Félags- og skólaþjónustu Þingeyinga, Framhaldsskólans á Húsavík og Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga. Hugmyndafræðingur þessa verkefnis og aðaldriffjöður er Geirlaug Björnsdóttir framkvæmdastjóri Starfsendurhæfingar Norðurlands.
30. nóvember 2007
Jólasöngsalur
Í dag var haldinn annar söngsalur á önninni. Hin eina sanna Hófí Ben, Hólmfríður Benediktsdóttir, kom og spilaði á píanó og stjórnaði söngnum með glæsibrag eins og henni einni er lagið. Nemendur og kennarar mættu á salinn og sungu nokkur jólalög saman.
20. nóvember 2007
Jónasarvaka á Húsavík
Föstudaginn 16. nóvember var haldin hátíð í íþróttahöllinni á Húsavík í tilefni af því að þann dag voru 200 ár liðin frá fæðingu skáldsins og náttúrufræðingsins Jónasar Hallgrímssonar.
Húsvískt skólafólk af öllum skólastigum sáu um dagskránna sem var einkar vegleg og ljóst að krakkarnir höfðu lagt mikla vinnu í að gera hátíðina sem glæsilegasta.
20. nóvember 2007
Spurningakeppni FSH og grunnskóla í Þingeyjarsýslu 2007
FSH stóð fyrir spurningakeppni fyrir grunnskólana í Þingeyjarsýslum föstudaginn 16. nóv. sl. Þetta var liður í undirbúningi liðs FSH fyrir Gettu betur keppnina og sá keppnislið FSH að mestu um undirbúning keppninnar.
Til leiks mættu 6 lið frá 5 skólum; tvö frá Borgarhólsskóla, eitt úr Öxarfjarðarskóla, Mývatnssveit, Þórshöfn og Raufarhöfn.
26. október 2007
Söngsalur
Gömul hefð hefur verið endurvakin í FSH, þar sem nemendur og starfsfólk skólans koma saman á sal og syngja.
26. október 2007
FSH eignast málverk
FSH eignaðist á dögunum stórglæsilegt málverk eftir listamanninn Sossu; Margréti Soffíu Björnsdóttur, frá Keflavík. Verkið er ein af Biblíumyndum Sossu
19. október 2007
Haustfrí FSH
Þetta árið er haustfrí FSH mánudaginn 22. október og þriðjudaginn 23. október. Skólinn verður lokaður þessa daga. Skrifstofan opnar að nýju kl. 8.00
18. október 2007
Haustþing kennara á Norðurlandi 2007
Starfslið skólans mætti eldhresst kl 07.00 og fór með rútu frá Rúnari Óskars, með viðkomu á Laugum. Þar var starfsfólk Laugaskóla tekið með. Haldið var sem leið lá á Sauðárkrók.
Valgerður Gunnarsdóttir, skólameistari FL, setti þingið.







