Fréttir FSH
17. september 2006
Efnafræðitími hjá Gunna Bald
Gunnar Baldursson hefur kennt efnafræði í skólanum svo lengi sem elstu nemendur muna. Í verklegum tíma hjá honum í síðustu viku voru nemendur í EFN203 að títra.
14. september 2006
Síðasti busadagurinn 2006
Það teygðist töluvert á busadögum því skipuleggjendur vildu fá alvöru góðviðrisdag til að enda vígsluna og hann kom 12. sept. Nýnemar skemmtu eldri nemum og starfsliði skólans með miklum tilþrifum í risafótbolta og fleiri útileikjum
7. september 2006
Ný stjórn NEF
Ný stjórn nemendafélagsins er tekin til starfa. Hana skipa Aldey Traustadóttir formaður, Ingvar Björn Guðlaugsson gjaldkeri, Þórveig Traustadóttir ritari, Halla Marín Hafþórsdóttir og Erna Jóna Jakobsdóttir eru meðstjórnendur.
5. september 2006
Kennsla hafin á umönnunarbrautunum
Nú er hafin kennsla á umönnunarbrautum og eru flestir nemendurnir starfandi með náminu og geta þá, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, fengið hluta af námi brautarinnar metið en þurfa að skila ákveðnum einingafjölda í kjarna og sérgreinum.
1. september 2006
Nýnemavikan
Í þessari viku hafa útskriftarnemar tekið vel á móti nýnemunum eða busunum eins og þeir eru oftast kallaðir í skólanum. Þeir hafa skemmt þeim og öðrum með allskonar uppátækjum.
1. september 2006
Starfsdagar á haustönn
Á starfsdögum skólans í síðustu viku var sú nýbreytni að farið var í óvissuferð með allt starfsfólkið. Farið var í rútu upp í Mývatnssveit í náttúruskoðunarferð. Þaðan var svo farið upp á Möðrudalsöræfi.







