Fréttir FSH
11. janúar 2006
Allt komið í fullan gang á ný !
Nú er vorönnin hafin og allt skólastarfið komið í fullan gang. Árni húsvörður er hér á sínum stað og hefur auga með því sem er að gerast og stjórnar umferðinni um skólann. Nemendur eru, eins og oft áður, heldur færri en á haustönninni en fjöldi kennara sá sami.
5. janúar 2006
Vorönn hefst
Á morgun 6. janúar hefst vorönnin. Nemendur eiga að mæta kl. 9 í umsjón. Strax á eftir hitta þeir kennara sína í hverjum áfanga og fá afhenta kennsluáætlun og aðrar leiðbeiningar fyrir önnina. Búið er að opna aðgang að stundaskrám nemenda í Innu.
Við viljum minna á að skylda er að mæta í umsjón.
Hlökkum til að hitta ykkur hress á nýju ári.
Kennarar og starfsfólk FSH







