Fréttir FSH
26. september 2005
Viðhorfskönnun um sameiningu sveitarfélaga
Þann 8. október n.k. verður kosið um sameiningu 7 sveitarfélaga í Þingeyjarsýslu. Þekkingasetur Þingeyinga og Framhaldsskólinn á Húsavík eru nú að vinna viðhorfskönnun um sameiningarmál sveitarfélaga í sýslunni.
20. september 2005
Umhverfisdagur í FSH
Í tilefni af umhverfisdegi í FSH fengum við í dag tvo góða gesti. Annar var Óli Halldórsson forstöðumaður Þekkingarseturs Þingeyinga og MA í umhverfisfræði. Hann fræddi okkur um sögu sorpeyðingar á Íslandi og starfsemi nýrrar sorpbrennslu sem er nú að rísa sunnan við bæinn.
14. september 2005
Kennt í myndfundabúnaði frá FSH
Í síðustu viku hófst fjarkennsla frá FSH, með notkun myndfundabúnaðar, í fyrsta skipti í sögu skólans. Kennararnir í FSH kenna í fundabúnaði sem er staðsettur á heilsugæslustöðinni hér á Húsavík.
7. september 2005
AFS skiptinemar í FSH
Nú í haust byrjuðu 2 AFS skiptinemar í framhaldsskólanum. Undanfarin ár hafa dvalið hér á Húsavík 2-3 skiptinemar frá AFS. Oftast hafa það verið stúlkur en nú eru komnir hingað tveir drengir, þeir Aaron Jacob Benner frá Bandaríkjunum og Clemens Leichtfried frá Austurríki.
5. september 2005
Nýr sögu og dönskukennari
Árni Geir Magnússon hefur verið ráðinn til að kenna sögu og dönsku við FSH. Árni Geir er Húnvetningur og hefur BA gráðu í sögu og dönsku og auk þess búfræðipróf frá Hvanneyri og þó nokkrar einingar í landafræði.
1. september 2005
Nemendur í FSH taka þátt í Idol !
Nokkrir nemendur úr FSH fóru í söngprufu fyrir Idol keppnina í gær. Þeim Ínu Valgerði Pétursdóttur og Heiði Sif Heiðarsdóttur tókst að komast inn.

1. september 2005
Nýr kennari í þýsku og viðskiptagreinum
Sigríður Mjöll Marinósdóttir hefur verið ráðin til kennslu við FSH. Hún er Reykvíkingur, stúdent af náttúrufræðibraut, með háskólapróf í þýsku og viðskiptagreinum







