Fréttir FSH
24. janúar 2005
Ný skólanefnd FSH
Í byrjun desember skipaði menntamálaráðherra nýja skólanefnd við FSH. Í henni sitja Guðrún Árný Guðmundsdóttir, Snædís Gunnlaugsdóttir og Tryggvi Finnsson tilnefnd af ráðherra, Erna Björnsdóttir og Trausti Aðalsteinsson tilnefnd af Húsavíkurbæ.
13. janúar 2005
Naumt tap fyrir FL
FSH tapaði fyrir FL í Gettu betur í gærkvöldi með 10 stigum gegn 12 og er þar með úr leik þetta árið. Síðustu tvö ár hefur FSH náð í aðra umferð keppninnar og einu sinni hefur skólinn komist í átta liða úrslit í sjónvarpi. Nú þarf áhugafólk í hópi nemenda að fara að huga að undirbúningi keppninnar á næsta ári og setja sér háleit markmið. Áfram FSH !!
11. janúar 2005
Spurningakeppni framhaldsskólanna
Framhaldsskólinn tekur nú þátt í spurningarkeppni framhaldsskólanna. Lið FSH skipa þeir Eiríkur Fannar Jónsson, Björgvin Friðbjarnarson og Halldór Fannar Júlíusson.
3. janúar 2005
Gleðilegt nýtt ár !
Við óskum samstarfsfólki, nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegs árs og þökkum fyrir gott samstarf á liðnu ári.
Fyrsti umsjónartími annarinnar verður föstudaginn 7. janúar og kennsla hefst samkvæmt stundarskrá 10. janúar.







