Fréttir FSH
20. desember 2004
Haustannarlok

Í dag lauk formlegu skólastarfi á haustönn með einkunnaafhendingu og prófsýningu.
Jólafríið er kærkomið til að hvílast og endurnæra líkama og sál fyrir næstu lotu á vorönn 2005. Sex nemendur luku stúdentsprófi á önninni ...
19. desember 2004
Kvöldvakan Gunna
Á föstudagskvöldið var haldin hin árlega kvöldvaka sem ber nafnið Gunna. Þar tróðu upp bæði nemendur og kennarar með skemmtiatriði og áttu saman ágæta kvöldstund.
>>Hér má sjá myndir
17. desember 2004
Nýja heimasíðan
Í dag á síðasta prófdegi, opnum við nýja heimasíðu FSH. Hún er hönnuð af starfsmönnum Arkar ehf. þeim Arngrími Arnarsyni og Hróbjarti Sigurðssyni. Arngrímur er stúdent frá FSH og stundar framhaldsnám í Danmörku.
Síðan verður þróuð áfram á næstu vikum og ætlunin er að opna hana formlega í upphafi nýrrar annar.
Ritstjóri nýju heimasíðunnar er Þórveig Kristín Árnadóttir.
3. desember 2004
Samræmt stúdentspróf
Í morgun fór fram fyrsta samræmda stúdentsprófið í FSH. Prófað var í íslensku og þrír nemendur tóku prófið, þau Helga Ragnarsdóttir, Ómar Annisius og Sandra Kristinsdóttir. Allir nemendur sem ljúka stúdentsprófi frá og með árinu 2005 þurfa að taka tvö samræmd stúdentspróf, í íslensku og annað hvort ensku eða stærðfræði. Hægt verður að taka prófin í desember eða maí þegar nemendur hafa lokið 15 einingum í prófgrein.
2. desember 2004
Fullveldissamkoma
Skólarnir á Húsavík efndu til fullveldissamkomu í Íþróttahöllinni . Húsfyllir var og auk nemenda og kennara mátti sjá fjölda annarra bæjarbúa.
Þar komu fram nemendur úr öllum skólunum og fluttu ljóð og laust mál, tónlist og sungu af hjartans lyst.
18. nóvember 2004
Þátttaka nemenda FSH í Ólympíuleikunum í nýsköpun
Tveir nemendur frá FSH, þeir Halldór Jón Gíslason og Eiríkur Fannar Jónsson tóku þátt í Ólympíuleikunum í nýsköpun sem fram fóru á Akureyri.







