Fréttir FSH
1. febrúar 2012
Ástráður – unglæknar í heimsókn

Í gær kíktu í heimsókn læknanemar, af öðru ári, á vegum Ástráðs sem er forvarnastarf læknanema. Hefð er fyrir því að læknanemarnir heimsæki nýnema í framhaldsskólum hér sem og á landsvísu þar sem áhersla er lögð á fræðslu um kynsjúkdóma, getnaðarvarnir og fóstureyðingar. Svo skemmtilega vildi til að nemarnir voru mjög kunnuglegir að þessu sinni enda ættaðir héðan þ.e. Stefán Þórsson Gettu betur og Útsvarsstjarna og Ástríður Pétursdóttir úr Mývatnssveit. Nýnemarnir voru mjög ánægðir með þá fræðslu sem þeir fengu og skemmtu sér vel.
1. febrúar 2012
Innritun nemenda með fötlun á starfsbrautir framhaldsskóla
Innritun nemenda með fötlun á starfsbrautir framhaldsskóla, fer fram fyrr en innritun almennt í framhaldsskóla. Innritað verður frá 30. janúar til 29. febrúar 2012. Tímamörk almennrar innritunar gilda þó fyrir þær umsóknir sem berast seinna.
25. janúar 2012
Skíða- og brettakvöld NEF

Neflimir nýttu sér kjörið tækifæri til að skíðast og brettast þegar stjórn NEF bauð í fjallið í kvöld. Færið var gott að sögn reyndra manna og veðrið fínt en svolítið kalt. Harðjaxlar létu það ekki stoppa sig og skíðuðu og brettuðu eins og enginn væri morgundagurinn. Sjá myndaalbúm.
25. janúar 2012
Bóndi FSH

Stjórn NEF hélt upp á bóndadaginn sl. föstudag. Í tilefni dagsins var boðið uppá þorramat og karlmenni skólans tókust á í reiptogi og sjómann. Þá voru nemendur, sérstaklega þó karlmenn, hvattir til að mæta í þjóðlegum klæðnaði, lopapeysum, lopasokkum eða öðru tilheyrandi. Bóndi skólans var svo hylltur í lok dags og leystur út með gjöf, en hann fékk glænýja og fína gúmmískó. Það var enginn annar en Arnór Elí Víðisson sem sæmdur var titlinum Bóndi FSH 2012. Sjá myndir í myndasafni.
13. janúar 2012
MRingarnir hraðmæltu of erfiðir
Okkar menn Andri, Fannar og Hafþór, stóðu sig með glæsibrag gegn ósigrandi og hraðmæltu liði MRinganna. Okkar menn voru skýrmæltir og stóðu sig eins og hetjur. Húrra fyrir þeim :D
5. janúar 2012
Skólastarf hefst á ný á nýju ári
Nemendur mættu í skólann í gær og fengu upplýsingar um námið og starfið framundan hjá kennurum. Kennsla hófst síðan í morgun skv. stundaskrá. Árangur nemenda á haustönn var mjög góður sem skýrist m.a. af því að skólasókn hefur sjaldan eða eldrei verið betri. Um 140 nemendur eru skráðir til náms á vorönn sem er heldur fámennari hópur en undanfarið þar sem óvenju stór hópur lauk námi sínu nú um áramót, þar af voru 15 nemendur á námsbraut fyrir leiðbeinendur í leikskólum. Gert er ráð fyrir því að tæplega 40 nemendur ljúki námi við skólann á þessu skólaári og brautskráist í vor. Við óskum þeim nemendum okkar sem lokið hafa námi innilega til hamingju, hinum óskum við góðs gengis á nýrri önn og hlökkum til samstarfsins.
20. desember 2011
Gleðileg jól
Framhaldsskólinn á Húsavík óskar nemendum og starfsfólki skólans, og fjölskyldum þeirra, gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári, – með þökk fyrir ánægjulegt samstarf á árinu sem er að líða.
6. desember 2011
Nemendaverkefni í líffræði
Snæfríður Dröfn Pétursdóttir, 4. árs nemi á Náttúrufræðibraut við Framhaldsskólann á Húsavík, hefur skilað ritgerð um rannsóknarverkefni sitt í verkefnaáfanganum LÍF303. Ritgerðin heitir "Áhrif hækkunar hitastigs sjávar á lífríki þangfjöru í Bakkakrók norðan Húsavíkur" en Snæfríður bar saman rannsóknaniðurstöður á sama sniði í Bakkakrók frá 1996 og 2008.
6. desember 2011
Jólavist á sal

Þann 1. desember komu nemendur saman í sal skólans og gerðu sér glaðan dag fyrir próftíðina framundan með því spila félagsvist. Spilamennskan gekk vel og þeir sem voru ekki með allt alveg á hreinu í upphafi voru fljótir að læra. Menn voru þó misheppnir með gjafirnar og í lokin fór það svo að Stefán Óli Valdimarsson og Þórunn Birna Jónsdóttir stóðu uppi sem sigurvegarar. Óheppnust allra voru þau Heiðdís Hafþórsdóttir og Stefán Júlíus Aðalsteinsson og Heiðdís gerði sér jafnframt lítið fyrir og hrifsaði til sín setuverðlaunin. Eins og sjá má ríkti ljúf jólastemning á sal skólans þessa morgunstund, enda fátt jólalegra en jólatónlist, kertaljós og kátir krakkar að spila vist.
25. nóvember 2011
Kaffihúsakvöldið Gunna 2011

Gunna er orðinn fastur liður í félagslífi NEFlima FSH og er í umsjón NEF stjórnar en Túnráð aðstoðaði stjórnina í ár. Í gærkvöldi var Gunna haldin í sal FSH og hefur sjaldan verið glæsilegri. Mjög fjölbreytt dagskrá var í boði: Tískusýning í umsjóna áfangans Tíska, húð og hár, tónlistaratriði í boði skólahljómsveitanna sem Axel Flóvent, Brynjar, Jón Ásþór og Gunnar Ingi skipa, Líney söng eins og engill við undirleik Matta og Kristjáns, léttir samkvæmisleikir voru svo í umsjón kynna kvöldsins sem voru Aðalbjörn og Selmdís. Samkvæmisleikirnir voru viðureign á milli árganga í skólanum og voru það Mehico-farar sem rústuðu keppninni. Í leikjunum á keppendur m.a. að útvega ýmsa hluti eins og klósettpappír og brjóstahaldara, troða eins mörgum vínberjum upp í sig og þeir gátu, hrósa hverjir öðrum, senda sms og leita uppi nælur.
Útskriftarnemar sáum um veitingar og þar vantaði ekkert upp á terturnar og vöfflurnar.
Að dagskrá lokinni í skólanum skundaði mannskapurinn niður í íþróttahöll í jólatarzan. Þar fór fram teymakeppni en þeir sem spreyttu sig voru Benni og Grétar, Arnór og Stefán Júlíus, Davíð og Gunnar Berg, Ísleifur og Lena, Andri Dan og Kristófer, Snorri og Ragnar, Hafþór og Sigþór og Jóhanna og Inga. Það voru Snorri og Ragnar sem sigruðu þessa spennandi keppni en enginn slapp undan þeim.
Hægt er að sjá myndir frá kvöldinu í myndaalbúmi skólans.







